Internet trölla tölvupóstur nr. 3

Ennþá sendir internet tröllið tölvupóst. Þetta verður þó síðasti tölvupósturinn sem ég mun birta frá þessari manneskju. Þar sem ég ætla hér eftir að flokka allt sem frá henni kemur sem spam í tölvupóstforritinu mínu. Ég þarf ennfremur að skrifa um merkilegri mál en setja fram tölvupósta manneskju sem er augljóslega ekki í lagi.

From: gudrun69 gudrun69@zoho.com

Subject: Jonfrímann frímann
Date: Thu, 14 Apr 2011 03:52:42 -0700 (fim 14.apr 2011 12:52:42)
Mailer: Zoho Mail

Kæri Jón

Að birta trúnaðarbréf á vefnum sínum varðar við lög og því ert þú lögbrjótur.
Þú verður að passa þig að birta ekki svona bréf sem innihalda trúnaðarupplýsingar.
Auðvitað fer ég ekki í mál við þig enda of kostnaðarsamt fyrir fatlaðan öryrkja með
mikilmennskubrjálæði eins og mig að standa í slíku.

Vonandi hættir þú að birta þessi bréf okkar og ljúga einhverju upp á kryppuna sem
ég les aldrei. Þú hlýtur að vera verulega illviljaður að bendla mig við þessa
samsærisrugludalla. Er engin sómatilfinning í þínum beinum eða ertu virkilega
stoltur af þessu??

Kveðja
Stelpunar í 3H

Ég veit ekki hver hvatinn er á bak við svona hegðun hjá fólki. Þar sem þetta er í raun bara ákveðin gerð af internet einelti og ekkert annað.

Internet trölla tölvupóstur nr. 2

Ennþá berast tölvupóstar frá einu internet tröllinu sem þykist vera afskaplega sniðugt að draga saklausan grunnskóla inn í þetta ímyndaða stríð sitt gegn mér.

From: gudrun69 gudrun69@zoho.com

Subject: Fjórtán gamlar kindur
Date: Thu, 14 Apr 2011 02:00:19 -0700 (fim 14.apr 2011 11:00:19)
Mailer: Zoho Mail

Kæri Jónfr

Hvernig dettur þér í hug að nota bréfið okkar til að auglýsa klósettpappír til sölu á
vefnum þínum án þess að segja hvað hann kostar.

1 rúlla er á 250 krónur og ef þú kaupir 16 saman í pakka færðu þær á 5000 krónur.

Hvernig gengur að stoppa Davíð og félaga. Er það rétt að þér hafi verið boðinn
ritstjórnarstaða á Eyjunni en afþakkað með látum. Var þetta ólaunað eða bara
greitt í krónum með gati?

Svo ættir þú ekki að vera birta þessi bréf á vefnum þínum. Þau eru bara fyrir þín
augu. Ekki birta þessi bréf. Bara alls ekki. Hananú!!

Krakkarnir í 6x

Þessi manneskja er væntanlega frá kryppa.com. Þar sem það er þeirra stíll að koma með svona upplognar fullyrðingar um mann. Þá sérstaklega að maður hafi skrifað eitthvað, eða átt að fá vinnu einhverstaðar. Hérna er að finna gott dæmi um slíkt, þar sem þessir menn fullyrtu í athugasemd hjá mér að ég væri að skrifa inn greinar hjá þeim. Það segir sig auðvitað sjálft að ég geri ekki slíkt. Enda hef ég engan áhuga á því að skrifa fyrir þessa rugludalla sem þarna er að finna.

Internet trölla tölvupóstur nr. 1

Hérna er tröllapóstur sem mér barst núna í morgun frá manneskju sem kallar sig Guðrún.

From: gudrun69 gudrun69@zoho.com

Subject: Verðlisti fyrir internetið
Date: Thu, 14 Apr 2011 00:44:59 -0700 (fim 14.apr 2011 09:44:59)
Mailer: Zoho Mail

Kæri Jónfr

Ég er að selja klósettpappír fyrir krakkana hérna í Melaskóla. Eins og allir vita þá erum við að fara í
páskaferðalag og vantar peninga til að standa straum af ferðinni. Okkar þætti vænt um að þú sem
einn af þessum útrásargaurum gætir séð af einni milljón eða svo til að hjálpa okkur.

Lítil framlög er líka vel þegin en best væri náttúrulega að fá sem mest frá þér. Þú hefur nú sýnt ótrúlega
mikinn lit að undanförnu og vonandi sérðu sóma þinn í að hjálpa okkur áfram.

Kær kveðja,
krakkarnir í 4s

Ef að þessi tröll héldu það að ég mundi ekki birta svona frá þeim vegna þess að ég væri ekki týpan í að gera svoleiðis. Þá höfðu þau rangt fyrir sér í þeim efnum.