Fasismi og útlendingahatur í ríkisstofnunum og kærunefnd útlendingamála

Ákvörðun Kærunefndar Útlendingamála um Venúsela er byggð á lygum, blekkingum og þvælu og hefur alltaf verið aldrei neitt annað. Þingmaður fór í vetur í pontu á Alþingi og laug þar að þjóðinni, alþingi og öllum sem heyra vildu um stöðuna í Venúsela og fullyrti að til Íslands væru flugvélar að koma til Íslands fullar af fólki frá Venúsela. Íslenskir fjölmiðlar í sínu gagnleysi og meðvirkni gerðu ekkert með lygar þessa þingmanns, annað en að endurtaka þær og láta síðan gott heita. Í öðrum ríkjum hefði viðkomandi þurft að segja af sér og síðan settur í lögreglurannsókn í besta tilfelli. Ábyrgð Alþingis er engin og virðing Alþingis er engin.

Núna er búið að vísa 180 manns frá Venúsela í hendurnar á brjáluðum einræðisherra og enginn veit hvað verður um þetta fólk. Þar sem það er ekkert réttaríki í Venúsela, efnahagurinn er rúst og spillingin er algjör. Þessi málsmeðferð er mannréttindabrot og verður aldrei neitt annað.

Tengd frétt

180 Venesúelabúum flogið úr landi í gær (mbl.is)

Lögbrot Jóns Gunnarssonar, dómsmálaráðherra

Nýleg lög um útlendinga sem samþykkt voru á Alþingi eru og hafa alltaf verið lögbrot miðað við þau lög sem gilda um Mannréttindi á Íslandi. Flóttamenn sem koma til Íslands hafa rétt á því að mál þeirra sé tekið fyrir af íslenskum stjórnvöldum. Þetta er samkvæmt sáttmála sem íslensk stjórnvöld skrifuðu undir hjá Sameinuðu Þjóðunum í kringum árið 1950.

Útlendingahatur og kynþáttahatur (þessi hugmyndafræði er byggð á lygi frá 15 öldinni) er til skammar og verður alltaf til skammar. Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra og öll ríkisstjórn Íslands er til skammar og það ætti að boða til kosninga sem fyrst. Forseti Íslands ætti einnig að neita að skrifa undir þessi lög, þar sem þau eru andstæð góðri stjórnsýslu og byggð á lygum og hatri á útlendingum.

Mannhatursfrumvarp Jóns Gunnarssonar samþykkt á Alþingi

Það er Alþingi til ævarandi skammar að hafa samþykkt mannhatursfrumvarp Jóns Gunnarssonar, núverandi dómsmálaráðherra, sem hann lagði gegn flóttamönnum og útlendingum. Vegna þess að þessi maður er rasisti og fasisti og elur á útlendingahatri og goðsögnum um flóttamenn. Jón Gunnarsson er maður sem trúir á lygi frá 15 öldinni, lygi sem fann upp og bjó til rasisma og það mannhatur sem plagar mannkynið á 21 öldinni.

Þetta frumvarp, þessi lög eru og verða Alþingi til ævarandi skammar og niðurlægingar. Núna er á Forseta Íslands að stöðva þessi ólögmætu lög og síðan á að boða til nýrra kosninga, þar sem ekki er réttlætanlegt að hafa svona fasisma við völd á Íslandi. Þar sem það sem Jón Gunnarsson er að koma í gegn hérna, í sambandi við rafbyssuvæðingu lögreglunnar á Íslandi er fasismi og ekkert annað og það verður að stöðva með öllum ráðum.

Fréttir af þessu

Útlendingafrumvarpið samþykkt (mbl.is)
Útlendingafrumvarp samþykkt á Alþingi (Rúv.is)

Kerfisbundið útlendingahatur hjá Dómsmálaráðherra [Sigríði H. Andersen], Útlendingastofnun

Það er lýsandi fyrir það hvernig komið er fram við fólk sem á ekki neitt á Íslandi að flóttamenn eru þar neðstir. Dómsmálaráðherra er harður útlendingahatri og hefur samkvæmt því sem sagt er skrifað greinar gegn útlendingum og flóttamönnum á vefsíðu sem er nú búið að leggja niður og hét AMX (öfgafullur hópur kristinna og hægri fasista í sjálfstæðisflokknum). Í dag er AMX ekki lengur til og allt þar efni sem var inni hefur verið þurrkað út (þetta gerðist um leið og þetta komst til valda á Íslandi). Þar að leiðandi finn ég ekki greinar frá Sigríði H. Andersen þar sem hún skrifar um útlendingahatur.

Hinsvegar hafa verk Sigríðar H. Andersen talað undanfarið og þau verk eru til skammar. Enda er það svo að íslendingar í dag þverbrjóta alla mannréttindasáttmála og reglur innan Evrópu með þeirri meðferð sem flóttamenn sem koma á eigin vegum til Íslands sæta. Fyrir þetta eitt ætti dómsmálaráðherra að sæta lögreglurannsókn og jafnvel dæmast til langrar fangelsisvistar. Það besta sem er hinsvegar hægt að gera að að krefjast þess að ríkisstjórn Íslands segi af sér án tafar og skilyrðislaust vegna lögbrota dómsmálaráðherra. Annars á Katrín Jakobsdóttir núvernandi forsætisráðherra að reka dómsmálaráðherra með skömm og skít. Enda verður ekki unað við núverandi ástand í dómsmálum íslendinga (og er staða flóttamanna þar bara eitt mál).

Það þarf að endurskipa alla yfirstjórn Útlendingastofnunar. Enda hefur safnast þar saman fólk sem er óhæft til þess að vera þar við völd og rekstur þeirrar stofnunar. Enda sýnir hegðun þess að það er á móti flóttamönnum og hvernig málum þar er háttað þá er mikil andstaða við útlendinga almennt innan þeirrar stofnunar. Slíkt á ekki að líðast enda er hérna um að ræða kerfisbundinn rasisma hjá íslenska ríkinu.

Ef Vinstri Grænir gera ekki neitt í þessu. Þá er ljóst að flokkurinn er alveg jafn gjörspilltur og framsóknarflokkurinn og sjálfstæðisflokkurinn. Íslendingar hafa ekkert við slíka stjórnmálaflokka að gera í dag. Framtíðin krefst þess að betur sé staðið að málum heldur en er gert núna í dag.

Sig­ríður Á. And­er­sen, Dómsmálaráðherra er rasisti af verstu gerð

Það er alveg ljóst að Sig­ríður Á. And­er­sen, Dómsmálaráðherra á Íslandi er rasisti af verstu gerð sem trúir sinni eigin þvælu um yfirburði íslendinga. Sig­ríður Á. And­er­sen á án tafar að segja af sér embætti dómsmálaráðherra enda er ljóst að hún er ekki hæf að gegna þessu embætti og hefur líklega aldrei verið hæf til þess að gegna embætti dómsmálaráðherra eða þá vera á Alþingi Íslendinga almennt.

Sig­ríður Á. And­er­sen er um þessar mundir skömm íslendinga fyrir það hvernig hún kemur fram við fátæka flóttamenn sem koma til Íslands til þess að fá vernd fyrir ofsóknum og því að vera myrt af óðum glæpamönnum í sínu heimalandi þar sem ríkir oft á tíðum stríðsástand.

Fréttir þessu tengt

Fram­færsl­an tal­in aðdrátt­ar­afl (mbl.is)

Lygaþvæla Robert Spencer

Mér þykir ljóst á fréttum og þeim staðreyndum sem komið hafa fram í fjölmiðlum undanfarna sólarhringa að Robert Spencer er einfaldlega að ljúga því þegar hann segir að „eitrað“ hafi verið fyrir honum á Íslandi. Mér þykir ljóst að ekkert slíkt hefur gerst og hann er einfaldlega að skálda þetta upp með hjálp frá öðrum einstaklingum til þess að afla hatursboðskap sínum fylgis á Íslandi og víðar og koma á sama tíma slæmu orði á þá sem eru að berjast gegn honum.

Ein af lygum Robert Spencer er sú að hann hélt því fram að Southern Poverty Law Center [Wikipedia] séu umdeild samtök í Bandaríkjunum, það er ekki raunin. Þetta er virt lögfræðistofa sem berst gegn hatri í Bandaríkjunum og þar á meðal ný-nasistum og öðrum haturshópum sem þar starfa. Einhverjir hafa gagnrýnt aðferðarfræðina sem þessi stofnun notar, þó er hinsvegar ljóst að hérna er umræðan farin að snúast um heimsspeki en ekki staðreyndir. Þeir sem helst gagnrýna Southern Poverty Law Center í Bandaríkjunum eru kristnir íhaldsmenn sem eru með vafasamar skoðanir á þessu sviði.

Southern Poverty Law Center hefur ýtarlegan prófil um Robert Spencer [2] og hans hatursboðskap og hvernig hann hefur starfað undanfarna áratugi. Þar er sérstaklega tekið fram að menntun hans um Íslam er í raun engin og hefur aldrei verið, þó svo að hann sé háskólamenntaður á öðrum sviðum.

Það kemur síðan lítið á óvart að hatursútvarpsstöðin Útvarp Saga skuli nota þetta mál til þess að réttlæta málflutning sinn og breiða út ennþá meira hatur. Í þetta skiptið gegn fólki sem hefur talað gegn málflutningi Útvarps Sögu á undanförnum mánuðum og reynt að stoppa af þessa útvarpsstöð (sem brýtur lög um notkun FM tíðni á Íslandi). Það er alveg ljóst að þetta er hönnuð atburðarrás hjá Robert Spencer og mig grunar að aðilar tengdir Útvarpi Sögu hafi komið þar að málum.

Það verður skrifuð sérstök grein um Valdimar Jóhannesson síðar ef tími gefst til þess hjá mér.

Fréttir af þessu

Ömurleg heimsókn til Íslands (Vísir.is)
Robert Spencer segir Íslending hafa eitrað fyrir sér (Vísir.is)
Banatilræðið á Bar Ananas: Valdimar Jóhannesson fer hamförum á Útvarpi Sögu (Eyjan.is)

Kristnir talibanar á Íslandi

Á Íslandi er fullt af kristnum talibönum. Einn af þessum fávitum og drullusokkum er maður af nafni Jón Valur Jensson, sem gerir útá útlendingahatur, andúð á Evrópusambandinu og einnig á önnur Júdísk trúarbrögð og er vinsælast hjá honum að ráðast á íslam vegna öfgamanna sem þar eru, þó vill Jón Valur Jensson ekkert ræða þær öfgar sem hann á sjálfur sameiginlegt með íslömskum trúarbræðrum sínum. Þar á meðal afnám mannréttinda samkynhneigðra, kvenna (þar vill hann helst afnema réttindi kvenna til fóstureyðinga og réttindi til getnaðarvarna, mér þykir einnig líklegt að hann vilji einnig banna konum að skilja við menn sína eins og aðrir kristnir öfgatrúmenn).

Núna síðast vill Jón Valur Jensson afnema ferðafrelsi múslíma vegna nokkura hryðjuverkarmanna sem starfa þar en hann hefur ekkert nefnt um að afnema ferðafrelsi kristinna öfgamanna og hryðjuverkarmanna. Einn af þessum hryðjuverkarmönnum drap sex manns um daginn í Kanada (frétt um fjöldamorðin) í köldu blóði og Jón Valur Jensson virðist ekkert rosalega pirraður á því. Enda sá hann enga ástæðu til þess að fordæma þessa hryðjuverkaárás og fjöldamorð en er á sama tíma að ráðast á múslíma fyrir sömu glæpi. Tvískinnungirinn er hrikalegur.


Jón Valur Jensson vill skerða ferðafrelsi allra múslíma vegna öfgamanna sem þar eru. Þetta er ógeðfelld skoðun og á ekki neinn rétt á sér.

Tilvitnun í Jón Val, „[…] Evrópa reisti sér hurðarás um öxl með innflytj­enda­stefnu síðustu áratuga. Henni hefnist þar líka að hafa drepið niður eigið kyn með millj­ónum fósturvígs­aðgerða.[…]“.

Þessi tilvitnun byggir á bulli, kjaftæði sem var fundið upp á 18 og 19 öldinni þegar rasismi náði flugi í Evrópu og fór að breiðast út (sjá hérna, hérna og hérna). Það er hægt að vitna í margar fleiri heimildir sem sýna og sanna að þessi réttlæting Jóns Vals á sínum eigin rasisma er ekkert nema tómt kjaftæði sem hefur ekki og mun aldrei standast neina skoðun. Jón Valur notar orðið „fósturvígsaðgerða“ um fóstureyðingar, réttindi sem hann er mjög svo áhugasamur um að taka af konum.

Jón Valur er alvarlega ruglaður einstaklingur, eins og liðið sem heldur til á Útvarpi Sögu og stundar þar níðhátt sinn gagnvart saklausi fólki sem hefur komið til Íslands í leit að betra lífi. Það eru ekki flóttamennirnir sem eru vandamálið hérna, heldur er það ógeðfellt fólk eins og Jón Valur sem stundar stöðugan hatursáróður gegn flóttamönnum og útlendingum sem er vandamálið. Enda er verið með þessum málflutningi verið að hvetja til ofbeldis gegn saklausu fólki, hvort sem er með beinum eða óbeinum hætti og það á ekki að líða slíkt. Enda er fólk allstaðar eins, alveg óháð því hvaða heimskulega trúarbragð það stundar.

Það er nóg til af kristnum hryðjuverkarmönnum en fjölmiðlar fjalla lítið eða ekkert um þá, hvort sem er á Íslandi eða annarstaðar. Hérna er grein frá árinu 2015 um tíu hættulegustu kristnu hryðjuverkahópana sem eru þekktir í dag.

* Þess má einnig geta að Jón Valur Jensson leyfir ekki neinar skoðanir sem eru andstæðar hans eigin á blogginu sem hann er með á blog.is. Enda hefur maðurinn ekkert þol gagnvart andstæðum skoðunum annars fólks og hefur aldrei haft það. Síðan má einnig nefna það að Jón Valur er mikill stuðningsmaður fasisma og hefur á undanförnum áratugum stutt fasista hvar sem þeir hafa komið fram í heiminum. Ég veit ekki til þess að það hafi neitt breyst hjá honum á síðustu áratugum. Enda er maðurinn snar-brenglaður og ætti að öllu jöfnu að vera meðhöndlaður sem jarðar-tilfelli, því miður hefur Jón Valur Jensson fengið mikið vægi í umræðunni á Íslandi og það er ekki í lagi og því er nauðsynlegt að tala gegn þvælunni sem frá honum kemur þegar þvælan verður slík að óþefinn leggur um allt internetið.

Af íslenskum rasistum og öðru illa innrættu fólki

Það er ýmislegt fólk sem ver kynþáttahyggju og aðra slíka heimsku á DV.is. Hérna er augljóslega á ferðinni fólk sem er illa innrætt og skoðanir þessa fólks eiga ekki að fá að líðast í dag.

Frétt DV.is.

„Hérna, ertu gay?“ Uppnám á fundi Þjóðfylkingarinnar

Þarna er líka verið að þjófkenna mig og rifja upp gamalt mál gegn mér (2001 – 2002) fyrir það eitt að tala gegn svona ógeði. Ég mun setja inn myndir síðar, tölvan sem ég er að nota núna er ekki fær um slíka vinnslu, auki sem að internetið er frekar lélegt og ræður illa við slíkan gagnaflutning.

Útlendingastofnun verði lokað án tafar

Ég hér með legg til að allir starfsmenn Útlendingastofnunar verði reknir og nýjir ráðnir í þeirra stað. Ásamt því að öll yfirstjórn Útlendingastofnunar verði rekin og rannsókn hafin á misnotkun þeirra á lögum og reglum gagnvart útlendingum sem koma utan ríkja EES/ESB/EFTA.

Sú stefna sem er rekin á Íslandi gengur ekki lengur. Enda er sú stefna mjög einföld og samþykkt af ríkisstjórn Íslands. Stefnan er sú að halda öllum utan Íslands með öllum mögulegum leiðum, líklega leiðum sem eru augljóslega ekkert annað en mannréttindabrot gagnvart flóttamönnum og öðrum sem koma frá ríkjum utan EES/ESB/EFTA.

Niður með Útlendingastofnun.

Íslendingar ættu ennfremur að vera þakklátir fyrir það að einhver nenni að flytja til Íslands yfir höfuð.