Jarðskjálfti uppá 8.3 á ricther hjá Kuril eyju, Rússlandi

Klukkan 11:14 í dag varð jarðskjálfti uppá 8.3 á ricther hjá Kuril eyju í Kyrrahafi. Þessi jarðskjálfti setti af stað smá flóðbylgju, einnig sem það voru í gildi flóðbylgjuviðvaranir um mest allt Kyrrahaf vegna þessa jarðskjálfta. Lestir í Japan voru stöðvaðar vegna þessa jarðskjálfta og fólki ráðlagt að fara hærra upp, vegna flóðbylgjuhættunar. Talsvert hefur verið um eftirskjálfta þarna í dag, sá stærsti 6.4 á ricther.

[Uppfært klukkan 22:03 þann 15 Nóvember, 2006]