Næsta hrun íslendinga verður hrun þjóðarstoltsins

Næsta hrun íslendinga er yfirvofandi. Næsta hrun mun ekki snúast um peninga eða völd. Næsta hrun íslendinga mun snúast um algert hrun þjóðarstolts íslendinga þegar það mun renna upp fyrir íslendingum hverskonar mistök og hversu bjánalega íslendingar hafa hegðað sér frá efnahagshruninu haustið 2008 og í raun löngu fyrir þann tíma.

Hrun hins íslenska þjóðarstolts mun verða mun verra og mun langvinrana en efnahagshrunið haustið 2008. Íslenska þjóðin vildi ekki siðbót eftir efnahagshrunið haustið 2008. Kröfurnar um breytingar og betra siðgæði voru aldrei alvarlegar af hálfu íslensku þjóðarinnar, enda vildi þjóðin ekki breytast og alls ekki játa þau mistök sem gerðu voru af hennar hálfu fyrir efnahagshrunið haustið 2008.