Lygavefur sjálfstæðisflokksins

Starfsemi sjálfstæðisflokksins má lýsa á einfaldan hátt. Þetta er stjórnmálaflokkur sem starfar eins og mafía og glæpasamtök. Þetta er mjög augljóst á starfsemi sjálfstæðisflokksins undanfarna áratugi á Íslandi. Þar sem að sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt upp með það ná undir sig öllum fjölmiðlum á Íslandi og tekist það á endanum. Ennfremur sem að sjálfstæðisflokkurinn hefur ofsótt alla þá sem hafa staðið í vegi fyrir honum á undanförnum árum. Ég þarf ekkert sérstaklega að rifja upp slík dæmi hérna, fólk á Íslandi veit fullvel hvað ég tala um hérna.

Þessi hegðun sjálfstæðisflokksins er ekki bundin við undanfarna áratugi. Hinsvegar hefur þessi hegðun sjálfstæðisflokksins versnað um margt síðan Davíð Oddsson tók við völdum í sjálfstæðisflokknum á sínum tíma. Það gildir litlu þó svo að Davíð Oddsson sé opinberlega ekki við völd í sjálfstæðisflokknum núna í dag. Það er augljóst að Davíð Oddsson stjórnar öllu því sem hann vill þar ennþá í dag. Stundum fer hann ekki einu sinni leynt með það þegar hann veður yfir fólk á skítugum skónum.

Óhróðursdeild/áróðursdeild sjálfstæðisflokksins

Sjálfstæðisflokkurinn rekur að bandarískri fyrirmynd gífurlega öfgluga áróðursdeild innan síns flokks. Enginn annar stjórnmálaflokkur á Íslandi er með slíka deild. Þess deild er samansett úr hópi fjörítíu einstaklinga. Þessi svið innan sjálfstæðisflokksins eru kölluð sniðugum nöfnum eins og „Samskiptasvið“, „Innra starf“, „Stefnumótunarsvið – Innra starf og alþjóðamál“[1].

Það fer hinsvegar minna fyrir óhróðursdeild sjálfstæðisflokksins. Sem er rekin í gegnum vefina AMX og Evrópuvaktina. Þar sem að seinni vefurinn hefur þann eina tilgang að dreifa út óhróðri um ESB og starfsemi þess á Íslandi og í Evrópu. Það er einnig hlutverk Evrópuvaktarinnar er að dreifa út röngum upplýsingum um ESB og aðildarferli Íslands að ESB í heild sinni. Einnig sem að Evrópvaktin hefur það hlutverk að dreifa út óhróðri um stuðningsmenn ESB aðildar á Íslandi.

Vefurinn AMX hefur hinsvegar annan tilgang og viðameiri. Tilgangur AMX er að þagga niður í öllum þeim sem voga sér að gagnrýna sjálfstæðisflokkinn í fjölmiðlum á Íslandi. Þeir hafa einnig fært þetta útá internetið og umræðuna sem á sér stað þar. Þar að auki þá stundar AMX svokallaðar „smear“ árásir á fólk sem þóknast ekki Davíð Oddssyni og hans glæpagengi, eða voga sér að benda á eða gagrýna ákvarðanir eða starfsemi Davíð Oddssonar og sjálfstæðisflokkinn í heild sinni eða að hluta.

Hlutverk Morgunblaðsins

Það er áhugaverð staðreynd að Davíð Oddsson og sjálfstæðisflokkurinn eru að nota Morgunblaðið í sína eigin þágu. Þá á kostnað þeirra hluthafa sem eiga núna og blæða fyrir rekstur Morgunblaðsins (tap er uþb 5 milljónir á dag, áætlað). Þegar sjálfstæðisflokkurinn og Davíð Oddsson verða búnir að nota Morgunblaðið þá munu þeir einfaldlega leyfa fyrirtækinu í kringum Morgunblaðið fara á hausinn og þannig tryggja að núverandi hluthafar munu tapa öllu sínu og örugglega meira til. Hvað svo sem verður eftir að Morgunblaðinu verður síðan gefið samstarfsmönnum og öðrum tryggum einstaklingum í kringum Davíð Oddsson. Hluthöfum Morgunblaðsins væri hollast að slátra þessu samstarfi nú þegar. Sérstaklega að þeir munu bara tapa á því. Gildir þá einu hverju Davíð Oddsson og hans fólk hefur lofað hluthöfum Morgunblaðsins (sem ég er alveg vissum að hefur verið gull og grænir skógar í staðin fyrir aðstoðina).

Þörf á lögreglurannsókn á starfsemi sjálfstæðisflokksins

Það er alveg ljóst að þörf er á lögreglurannsókn varðandi sjálfstæðisflokknum og starfsemi hans undanfarnaáratugi. Vegna þess að þessi flokkur hefur ekki sýnt nein merki um breytingar og hefur viðhaldið glæpsamlegri hegðun sinni eins og ekkert hafi breyst á Íslandi vegna efnahagshrunsins sem þeir bera meginábyrgð á.

Það er hinsvegar ljóst að fólkið á Íslandi þarf að setja endapunktin á tilveru sjálfstæðisflokksins. Núverandi ástand gengur ekki og mun aldrei ganga upp hvernig sem á það er litið.