Það er ömurlegt að horfa uppá Ögmund Jónasson Innanríkisráðherra nota sína eigin pólitísku stefnu til þess að afvegaleiða lýðræðið á Íslandi. Sérstaklega í ljósi aðfarar Hæstaréttar Íslands að Stjórnlagaþinginu á grundvelli vafasamra kosningakæra, sem áttu uppruna sinn í öfga-armi sjálfstæðisflokksins á Íslandi. Enda hefur það sýnt sig að sjálfstæðisflokkurinn og framsóknarflokkurinn eru þeir stjórnmálaflokkar sem eru á móti lýðræðislegum umbótum á Íslandi. Enda eru sérhagsmunir þeirra aðila sem standa að baki þessum tveim stjórnmálaflokkum að þeir mundu afskrifa og banna allt lýðræði á Íslandi ef það hentaði þeim.
Það þýðir lítið að tala um að slíkt gæti ekki gerst á Íslandi. Vegna þess að það getur alveg eins gerst á Íslandi eins og annarstaðar í heiminum. Íslendingar eru nefnilega ekkert heilagri en aðrar þjóðir á plánetunni Jörð.
Það er alveg ljóst að Ögmundur Jónasson ætti segja af sér embætti Innanríkisráðherra. Enda er hann óhæfur til starfans á meðan hann tekur ekki þátt í ríkisstjórnarsamstarfi Samfylkingar og Vinstri Grænna. Það væri nær fyrir Ögmund Jónasson að hætta afskiptum af stjórnmálum. Vegna þess að það gengur ekki að reka persónulega pólitík þegar maður er ráðherra í ríkisstjórn sem byggir á samstarfi tveggja stjórnmálaflokka.
Hérna er hægt að lesa hina persónulegu yfirlýsingu Ögmundar Jónassonar Innanríkisráðherra. Þessi yfirlýsing segir það að Ögmundur er andstæður breytingum á stjórnarskrá Íslands og ekkert annað.
Þú ert greinilega þingræðissinni, ekki lýðræðissinni.
Ég er lýðræðissinni. Það er staðreynd að hæstiréttur íslands notaði völd sín til þess að dæma kosninguna til stjórnlagaþings ógilda á afskaplega vafasömum forsendum og kærum sem teljast afskaplega hæpnar.
Það er ennfremur staðreynd að íslendingar eru með þingræði, sem er ein gerð af lýðræði. Lærðu að þekkja þetta tvennt í sundur.