Blind foringjardýrkun í sjálfstæðisflokknum

Á vefnum AMX, sem er áróðursvefur ný-frjálshyggjunar á Íslandi má sjá dæmi um algera og gjörsamlega blinda foringjardýrkun sjálfstæðismanna á Davíð Oddssyni. Í umræddri grein er talið upp það sem ný-frjálshyggjumenn á Íslandi telja að sjálfstæðisflokkurinn með Davíð Oddsson hafi breytt til hins betra á Íslandi. Það er gjörsamlega sleppt þeirri staðreynd að það var sú efnahagsstefna Davíð Oddssonar og einkavæðing sem hefur skert þjónustu á Íslandi og lagði efnahag Íslands í rúst árið 2008.

Svona blind foringjardýrkun eins og þá sem er að finna í sjálfstæðisflokknum er víti sem á að varast. Enda kemur ekki neitt gott útúr slíku og hefur aldrei gert það.

Þeir sem vilja kynna sér blinda foringjardýrkun í sjálfstæðisflokknum geta gert það hérna (Varúð, AMX).