Málflutningur andstæðinga ESB á Íslandi er rugl

Málflutningur andstæðinga ESB á Íslandi er með einsdæmum. Það er ekki nóg með að þarna séu einstaklingar sem eru alvarlega sjúkir og með miklar ranghugmyndir um heiminn. Heldur er þarna fólk sem gjörsamlega siðlaust og hikar ekki við að ljúga ef það hentar þeim.

Hérna er gott dæmi um þennan sjúkleika.

Ef einhver skyldi enn velkjast í vafa, þá er þriðja heimsstyrjöldin löngu hafin, þó það hafi aldrei verið tilkynnt formlega. Þetta er ekki svo hefðbundið stríð nema á afmörkuðum svæðum, en á öðrum svæðum brýst það fram í formi upplýsingastríðs, gjaldmiðlastríðs, viðskipta- og pólitískra átaka. Fjármálakerfi vesturlanda í núverandi mynd er blekkingarmynd þaulskipulagðrar starfsemi sem væri glæpsamleg ef hún hefði ekki verið lögleidd fyrir tilstilli spillingarafla. Mannkynið mun ekki ná framförum fyrr en miskunnarlaus sjálfsgagnrýni hefur framið og nauðsynlegar úrbætur gerðar, en það krefst hugrekkis, auðmýktar og heiðarleika.

Þetta er tekið héðan.

Síðan má einnig benda á þessi ummæli hérna.

Fyrst ESB-sinnar kalla á Sturlungaöld skulu þeir verða að ósk sinni. ÞJÓÐFRELSISSTRÍÐIÐ ER HAFIÐ!!!!!!!!!!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 25.6.2011 kl. 01:36

Tekið héðan.

Málflutningur þeirra sem er í Heimssýn er ekkert betri. Eini munurinn er sá að hann er aðeins snyrtilegri, en alveg jafn mikið úr sambandi við raunveruleikann eins og annað sem hefur komið frá andstæðingum ESB á Íslandi undanfarin áratug eða svo. Síðan má einnig benda á það að ný-frjálshyggjan (þessi sem gerði Ísland gjaldþrota) styður og styrkir vandlega samtökin Heimssýn og hefur alltaf gert það. Einokunarliðið í Bændasamtökum Íslands styrkir síðan Heimssýn rækilega með fjármagni og áróðursmeisturum.