Leika stærstu fórnarlömbin á Íslandi

Samkvæmt DV.is þá ásakar Davíð Oddsson Evrópusinna um að óeigingjarna umræðu og óvild í umræðunni. Staðreyndin er hinsvegar sú að ekkert slíkt á sér stað. Það sem er einfaldlega að gerast er sú staðreynd að andstæðingar Evrópusambands aðildar Íslands eru að tapa rökræðunni og það á ekkert eftir að breytast á næstunni.

Hinsvegar hafa sjálfstæðismenn og andstæðingar Evrópusambands aðildar gripið til gamalla ráða sem hafa virkað vel á Íslandi í gegnum árin. Það bragð er að leika fórnarlömb út í eitt. Þá láta sjálfstæðismenn og núna andstæðingar Evrópusambands aðildar Íslands eins og það sé verið að fara illa með þá og þeir séu beitt ranglæti í umræðunni. Á meðan staðreyndin er einfaldlega sú að ekkert slíkt á sér stað í raunveruleikanum. Heldur er hérna á ferðinni aðeins um að ræða leikaraskap hjá sjálfstæðismönnum og andstæðingum Evrópusambands aðildar á Íslandi.

Gallin er hinsvegar sá að þessu trúir almenningur á Íslandi og styður þetta fólk og þann málstað sem það boðar. Jafnvel þó svo að það sé andstætt hagsmunum þess til skemmri og lengri tíma. Sjálfstæðisflokkurinn, Heimssýn og aðrir sem standa á gegn hagsmunum almennings á Íslandi eru einfaldlega að hafa íslendinga að fíflum þegar þeir láta eins og fórnarlömb. Sérstaklega í ljósi þess að sjálfstæðisflokkurinn og Heimssýn hafa aldrei verið nein fórnarlömb.

Frétt DV.is

Íhugar meiðyrðamál gegn Morgunblaðinu