Tölfræðin um tilraunir til barnsrána á Íslandi (atvikin sem hafa verið í fréttum) [Uppfært]

Hérna er brot úr vefsíðunni Cracked.com sem fjallar um ýmsa hluti frá sjónarhorni húmors og staðreynda. Það hefur verið í fréttum undanfarna daga að einhverjir ókunnugir menn hafi reynt að tæla börn upp í bíla. Þó er að jafnframt staðreynd að hvorki hafa mennirnir fundist eða bílanir sem um ræðir. Það er reyndar talsvert merkilegt, þar sem að þessi atvik hafa stöðugt verið að koma upp síðan árið 2008. Fyrir utan árið 2010, þar sem ég hef ekki skráð hjá mér eitt einasta atvik. Það gæti þó bara verið að ég hafi ekki fundið slíkt í fréttum frá árinu 2010.

Grein cracked.com sem ég tala hérna um að ofan hefur þetta um málið að segja.

You’d Think…

When it comes to child molestation, there is no such thing as too careful. It is important that your children understand to never do anything a stranger tells them to, and to realize the entire world is out there just waiting to murder the shit out of them for no reason.

But in Reality…

As it turns out, an overblown emphasis on „Stranger Danger“ can apparently transform your children into xenophobic bigots, at least that’s what professor Sue Scott from the University of Durham is saying. According to Scott, children should certainly be taught to be cautious of strangers, but what most parents are teaching their kids today causes children worldwide to freak out at the mere sight of anything out of the ordinary.

Statistically children are far, far more likely to be abducted/molested by someone the family knows than a roving child molestation gang. Teaching children to fear anyone strange or different from themselves manifests itself later as a fear of pretty much the entire outside world. By adulthood, they’re locking their doors every time a Mexican walks by.

Hægt er að lesa restina af greininni hérna, 7 Things ‘Good Parents’ Do (That Screw Up Kids For Life)

Hérna er síðan tölfræðin um þessi tilfelli á Íslandi frá árinu 2008. Árið 2008 er reyndar síðasta árið sem tekið er skynsamlega á þessu.

Árið 2008: Tilfelli tilkynnt: 1 Tilfelli afsönnuð: 1 Tilfelli staðfest: 0

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lokið rannsókn á máli sem upp kom við Laugarnesskóla í byrjun janúar þar sem talið var að reynt hefði verið að nema á brott 8 ára stúlku sem er nemandi í skólanum. Lögreglan hefur ákveðið að aðhafast ekki frekar í málinu þar sem sýnt þykir að atburðurinn hafi ekki átt sér stað. […]

Frétt: Ekki reynt að ræna barni (mbl.is)

Árið 2009: Tilfelli tilkynnt: 2 Tilfelli afsönnuð: 0 Tilfelli staðfest: 0

Árið 2010: Tilfelli tilkynnt: 0

Árið 2011: Tilfelli tilkynnt: 16 (ennþá sem komið er.) Tilfelli afsönnuð: 2 Tilfelli staðfest: 0

Þetta er skráð með fyrirvara um villur og fréttir um þessi atvik sem hafa kannski farið fram hjá mér og eru ekki ennþá inni í þessu yfirliti.

Eins og sést á þessu stutta yfirliti. Þá er hlutfall þessara atvika orðið mjög hátt og fjölgar alveg óhemju hratt árið 2011 eða eftir því sem fréttaflutningur eykst af þessu. Atvikum þar sem þessir menn hafa náðst er ennþá í núll og hefur sú tala staðið óbreytt frá árinu 2008. Afsönnuðum tilfelli eru tvö, þar sem eðlilegar skýringar fundust á þeim tilfellum.

Þessi tilfelli bera merki þess að vera nútímagoðsögn eða hreinlega uppspuni umræddra barna, hvort sem að það er viljandi eða hreinlega bara ímyndunarveiki í þeim. Sérstaklega þar sem að foreldrar þessara barna eru hugsanlega búnir að hræða allt vit frá börnunum með endalausi tali um hættulegt ókunnugt fólk á Íslandi sem er að reyna tæla börn upp í bíla.

Þetta gæti jafnvel verið eitthvað annað í gangi. Hinsvegar þá bendir allt til þess að ekkert af umræddum atvikum hafi raunverulega gerst. Enda talsvert erfitt að fela bíla á Íslandi, jafnvel á höfuðborgarsvæðinu og það eru alltaf fleiri en bara börn á svæðinu þegar þetta gerist. Enda eru börnin líklega ekki eina fólkið á svæðinu, jafnvel þó svo að lagt sé upp með það í fréttaflutningi af þessum tilfellum.

Bloggfærsla uppfærð þann 30. Ágúst 2011 klukkan 19:25 UTC.
Bloggfærsla uppfærð þann 30. Ágúst 2011 klukkan 19:42 UTC.
Bloggfærsla uppfærð þann 31. Ágúst 2011 klukkan 17:49 UTC.