Af orðum andstæðinga ESB á Íslandi

Hérna er dæmi um orð sem andstæðingar ESB á Íslandi létu falla í minn garð núna í dag. Þetta segir í raun allt sem segja þarf um það hvernig fólk er á bak við ESB andstöðuna á Íslandi.

Hérna er ég kenndur við margt ógeðfellt. Ég ætti í raun að kæra þetta umsvifalaust til lögreglunar. Hinsvegar er það stór spurning hvort að slíkt borgi sig fyrir mig. Þar sem þetta yrði í raun aldrei meira en bara meiðyrðamál, og ég þarf að bera kostnaðin af slíkum málum sjálfur. Eitthvað sem ég hef ekki efni á. Hvorki í tíma eða peningum.

Smellið á myndinar til þess að fá fram fulla stærð.

Hérna eru fleiri ummæli sem falla í minn garð. Minna ógeðfelld, en ansi vafasöm engu að síður. Öll þessi ummæli féllu hérna, og hafa ekki ennþá verið fjarlægð af eiganda þessa bloggs sem er Páll Vilhjálmsson.

One Reply to “Af orðum andstæðinga ESB á Íslandi”

  1. Óþarfi að mála alla andstæðinga ESB rauða útaf nokkrum skemmdum eplum. Sjálfur er ég ekki mikill aðdáandi ESB en finnst þó áhugavert að hafa augun með blogginu þínu þar sem ég get séð aðrar hliðar á ESB deilunni sem auðveldar mér að ná heildarmynd á þessari dramatík.

    Hins vegar mætti vel hafa samband við þetta fólk á þessum myndum og kenna því að stunda mannleg samskipti á netinu. Ég hélt að aðeins krakkar sem vissu ekki betur væru með svona óþarfa skítkast á netinu en svo virðist ekki vera.

Lokað er fyrir athugasemdir.