Ég hef dregið grein til baka

Ég hef dregið greinina „Fólk sem tekur undir (styður) UKIP er ekki vinir mínir“ til baka. Allt sem er í henni er núna ómerkt og ógilt í mínum huga. Hvort að fólkið sem ég eyddi út af Facebook hjá mér addar mér aftur veit ég ekkert um.

Það breytir svo sem ekki miklu. Þar sem Facebook er hvorki upphaf eða endir alheimsins í þessu samhengi. Ég mun engu að síður halda áfram að gangrýna fólk sem telur sig hafa efni á því að vera á móti Evrópusambandinu. Þar verður engin breyting á hjá mér.