Þegar Heimssýn gat ekki svarað einni spurningu

Ég lagði einfalda spurningu fyrir Heimssýn hérna. Spurningin var þessi hérna.

spurning.til.heimssynar.16.04.2013

Spurningin er neðst fyrir þá sem eru að velta því fyrir sér hvar á að leita. Svarið sem ég fékk var þetta hérna. Þetta svar er rangt í heild sinni og hefur alltaf verið það. Enda er Evrópuvefurinn búinn að svara þessu mjög vel hérna.

heimssyn.blog.is.16.04.2013.23.25.utc

Svar Heimssýnar minnir á þetta hérna. Þeir taka ekki rökum og breyta staðreyndum í fleiri samsæriskenningar.

conspiracy_theories
Myndin er fengin héðan af vefsíðu xkcd sem teiknaði og á höfundaréttin af þessari mynd.

Í stutt máli þá er þetta ekkert svo flókið. Það er ekkert hægt að ræða við fólkið í Heimssýn. Það er svo langt upp í sínum samsæriskenninga heimi að rök og staðreyndir ná ekki til þess. Þegar rök og staðreyndir ná síðan til þess. Þá er þeim einfaldlega breytt í fleiri samsæriskenningar og þannig heldur þetta áfram endalaust. Það sem þarf hinsvegar að gerast er að einhver þarf að hætta að fjármagna þessa vanhæfu vitleysinga í Heimssýn. Að láta þetta fólk fá peninga er eins og að láta brennuvarg fá endalaust magn af kveikjurum. Heimssýn mun halda áfram að semja samsæriskenningar til þess að réttlæta tilveru sína og tilgang. Staðreyndir og heimurinn í kringum íslendinga og Ísland skiptir þetta fólk engu máli og hefur einfaldlega aldrei gert það. Þetta fólk hefur ekki áhuga á heiminum í kringum Ísland og hefur aldrei haft það.

Síðan er gott ráð að hætta að fóðra þessi fífl með peningum. Þannig er hægt að koma í veg fyrir mikla kjaraskerðingu íslensku þjóðarinnar og meiri efnahagsþrengingar en raunin er orðin núna í dag. Það besta sem hægt er að gera núna er að stoppa fíflin í heimssýn og önnur tengd fífl í íslenskum stjórnmálum sem vilja fara snargeðveika hugmyndafræði fólksins í heimssýn sem gengur útá að einangra Ísland frá umheiminum í nafni fullveldis og sjálfstæðis íslensku þjóðarinnar.