Það er enginn guð til

Það er ekki til neinn guð, gildir þá einu hvað hann er kallaður. Þeir sem sætta sig ekki við það eru barnalegir kjánar. Það er þó mikið áhyggjuefni að öll trúarbrögð nota ofbeldi til þess að koma boðskap sínum á framfæri og til þess að viðhalda honum. Á Íslandi er það kristin trú sem ríkjandi og notar til þess vald ríkisins til þess að halda sinni sérstöðu og kostar alla skattgreiðendur á Íslandi rúmlega 5 milljarða króna á ári (5.000 milljónir króna). Það er til skammar að peningum skuli vera sóað í það sem er í raun ekkert annað en galdratrú og blekkingar. Almenningur á ekki að láta bjóða sér þetta, en það sem kemur í veg fyrir að almenningur vísi kristinni kirkju frá er sá endalausi heilaþvottur sem kirkjan stendur í alla daga ársins um guðinn sem er einfaldlega ekki til, síðan er nefndur maðurinn sem var ekki til, og sá maður bar nafnið „Jesú“. Allt er þetta uppspuni, enda er biblían eins og við þekkjum hana dag afrakstur krikjuþinga sem eru haldin reglulega til þess að endurskrifa biblína eftir þörfum á hverjum tíma.

Ástæðan fyrir því afhverju guð er ekki til er mjög einföld. Alheimurinn er hreinlega alltof stór til þess að nokkur guð geti verið til. Einnig sem að lögmál alheimsins hreinlega leyfa það ekki að til sé almáttug vera í alheiminum, sem geti meðal annars búið til hluti úr engu. Þannig virkar alheimurinn einfaldlega ekki og mun aldrei gera og hefur aldrei gert. Stærð alheimsins í dag telst vera í kringum 93 milljarðar ljósára, það er rosalega mikið af plássi og rosalega mikið af vetrarbrautum, stjörnum og plánetum. Hérna er mynd af næsta nágrenni jarðarinnar og þess sem er að finna af því sem sjáum af alheiminum í kringum okkur, það sem við sjáum af alheiminum er rúmlega 43 milljarðar ljósára. Hérna er síðan útskýring á þeim ofurklasa vetrarbrauta sem okkar vetrarbraut tilheyrir. Sá hópur kallast Virgo Ofurklasi (Supercluster).

Alheimurinn er ennfremur þannig að mannkynið gæti horfið án þess að skilja eftir sig nokkur spor á Jörðinni og miðað við það pláss sem er í alheiminum þá er mjög ólíklegt að nokkur önnur siðmenning muni finna þau örfáu gervitungl sem send hafa verið frá Jörðinni á síðustu áratugum.

Í stuttu máli. Það er ekki til neinn guð. Alheimurinn leyfir það ekki. Guð er eingöngu uppfinning mannsins og það er eingöngu maðurinn sem viðheldur trúnni á guð og trúarbrögðum með skipulögðum aðferðum.