Áróðurspési á fullri ferð

Áróðurspésinn Hjörtur J. Guðmundsson er á fullri ferð á Vísir.is þessa dagana. Skrifar hverja þvæluna eftir aðra í skoðunardálkinn á Vísir.is, eitthvað sem hann virðist hafa auðveldan aðgang að með að skila inn sinni þvælu.

Nýjasta þvælan er að Evrópusambandsaðild sem málstaður skili ekki inn auknu fylgi. Þetta er auðvitað rangt og það er farið að sjást. Þó svo að ný stjórn Samfylkingar hafi ákveðið að aðild Íslands að Evrópusambandinu sé ekki í forgangi eins og er. Þá er aðild Íslands að Evrópusambandinu ennþá mál sem Samfylkingin stendur að, ásamt Viðreisn í íslenskum stjórnmálum. Hjörtur J. hefur aðeins eitt hlutverk og það er að dreifa áróðri og þvælu gegn Evrópusambandinu á Íslandi.

Menn eins og Hjörtur J. Guðmundsson eru ekki marktækir og hafa aldrei verið það. Enda starfa þeir í óheillindum, lygum og blekkingum. Sannleikurinn og staðreyndir eiga ekki heima hjá Hjört J.