Fasistarnir í Rússneska sendiráðinu á Íslandi

Í sendiráði Rússlands á Íslandi eru starfandi fasistar. Þetta fólk hefur þann tilgang að stunda njósnir á Íslandi eins og þeir gera í öðrum ríkjum Evrópu og hægt er að lesa um hérna.

Yfirlýsing Rússneska sendiráðsins um málflutning Utanríkisráðherra, Þordísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttir er ekkert nema hástemmt bull sem er ekkert nema áróður sem er dulbúið sem yfirlýsing til fjölmiðla á Facebook síðu sendiráðs Rússlands. Eins og má lesa um hérna á vefsíðu Vísir.is

Íslenska ríkinu væri best að vísa öllum sendiráðstarfsmönnum Rússlands frá Íslandi án tafar. Rússland hefur sýnt það í verki að þar eru ekkert nema fjöldamorðingjar og ólögmæt innrás Rússlands í Úkraínu ásamt ólögmætri innlimun Rússlands á landsvæði sem tilheyrir Úkraínu löglega eru staðreyndir sem engin getur afneitað. Nema Rússland, þar sem Rússland mun afneita þessu svo lengi sem skipun er gefin um slíkt af einræðinu í Kremlin.

Hættan af því að Rússland stofni til heimsstyrjaldar er mjög mikil í dag og hættan eykst með hverjum degi.