Heimssýn heldur í lygina

Í Finnlandi þessa dagana eru öfgamenn við völd. Einn af þessum öfgamönnum, sem er núna utanríkisráðherra Finnlands heldur því fram að Evran sé skaðleg efnahag Finnlands og það er alveg ljóst að viðkomandi er búinn að gleyma kreppunni í Finnlandi í upphafi tíunda-áratugarins. Staðan er sú að staða Finnlands er í dag betri með evrunni en utan hennar. Andstæðingar evrunnar hafa engin rök til þess að halda þessum fullyrðingum sínum fram.

Heimssýn hefur heldur ekki nein rök gegn evrunni. Það sem þeir hafa eru lygar og meiri lygar. Ekki neinar staðreyndir og þannig hefur það alltaf verið hjá þessum þjóðernissinnum, sem byggja málflutning sinn á hatri og rökleysu.

Örlög Íslands ráðast á næstu mánuðum og árum

Ísland er eitt þeirra ríkja sem varð til í kjölfarið á seinni heimsstyrjöldinni. Það er erfitt að segja til um það hvernig málin hefðu þróast ef stríðið í Evrópu hefði ekki brotist út. Þó er ljóst að Ísland hefði ekki orðið sjálfstætt ríki eins og raunin varð, líklegra er að íslendingar væru þá ennþá í konungsríkinu Danmörku með svipuðum hætti og Færeyjar og Grænland. Alveg óháð slíkum hugsunum þá er alveg ljóst að Ísland sem ríki er á mörkunum að vera starfhæft ríki eins og málin er að þróast núna. Ástæðan er ekkert flókin og hefur allt með þá staðreynd að gera hverjir eru við völd núna á Íslandi. Ég hef ekki skrifað mikið um íslensk málefni á undanförnum mánuðum, þar sem ég áttaði mig á þeim sannleika að lítið breytist á Íslandi og mun lítið breytast á næstu árum. Það eina sem breytist eru nöfnin, fjöldi þingmanna. Stefnumálin eru hinsvegar nærri því alltaf þau sömu, til skamms tíma (kjörtímabilið yfirleitt) og án nokkurar langtímaáætlana.

Það sem er að á Íslandi og er að gera alla stjórnsýsluinnviði landsins ónýta. Það má kalla þetta stjórnsýslulegan fúa. Ástæðan er mjög einföld, það er ekki verið að skipta út því sem fúnar á Íslandi, eins og er gert í öðrum ríkjum heimsins. Stjórnmálamenn eru ekki kærðir fyrir spillingu, stjórnkerfið og stjórnvöld rotta sig saman með stórfyrirtækjum og sérhagsmunasamtökum (Bændasamtök Íslands, Fyrrverandi LÍÚ, og fleiri) til þess að arðræna almenning á Íslandi inn að beini. Þetta eru nokkur atriði sem ég ætla að fara hérna yfir. Þar sem á meðan þetta er í sjálfu sér flókið, þá er þetta einnig á sama tíma mjög einfalt mál. Ég ætla að byrja á toppnum.

Forseti Íslands (Ólafur Ragnar Grímsson)

Byrjum á einföldu atriðunum. Ólafur Ragnar er búinn að sitja sem forseti Íslands í 19 ár þegar þetta er skrifað, á næsta ári verður hann búinn að vera í embætti í 20 ár. Það er aðeins einvaldurinn í Hvíta Rússlandi sem er búinn að sitja lengur og þar munar eingöngu einu ári. Fyrstu tvö kjörtímabil Ólafs Ragnar voru svo til án nokkura hneyksla eða umræðu um hans embætti. Enda gerðist nærri því ekki neitt markvert á þeim tíma. Síðan þá fór að draga til tíðina og þá sérstaklega eftir efnahagshrunið árið 2008. Í aðdraganda efnahagshrunsins var hann að nota embætti sitt til þess að auglýsa og styðja banka og önnur fyrirtæki á Íslandi. Slíkt fellur ekki undir embættisverk forseta Íslands, gallin er hinsvegar sá að engar reglur eru til um þetta og Ólafur Ragnar neitar að samþykkja siðareglur varðandi slík atriði.

Þegar tilefni gefa ástæðu til. Þá hefur Ólafur Ragnar notað allt það sem hentar honum til þess að auka vinsældir sínar. Á síðustu árum hefur hann notað Icesave til þess að auka vinsældir sínar og náði að toppa það fyrir forsetakosninganar árið 2012 og tryggja sér þannig endurkjör. Ólafur hefur aldrei unnið þannig að almenningi á Íslandi stafi bati af. Þannig hefur það í raun aldrei verið eftir að hegðun hans varð með þessum hætti sem núna er. Ólafur hefur hinsvegar verið að tryggja hagsmuni þeirra sem eru hvað ríkastir á Íslandi. Það er eina hugsun hans, enda er Ólafur að tryggja sína eigin hagsmuni með þessu eftir að hann lætur af embætti sem forseti Íslands.

Sjálfstæðisflokkur og framsóknarflokkur

Síðan Ísland varð sjálfstætt ríki árið 1944 (71 ár) hafa sjálfstæðisflokkurinn og framsóknarflokkurinn verið með völd á Íslandi í rúmlega 54 ár af 71 ár síðan Ísland varð sjálfstætt ríki (samkvæmt þessari hérna grein). Á þessum tíma hafa þessir stjórnmálaflokkar fúnað eins og annað í stjórnmálum Íslands á þessum tíma. Lítil endurnýjun verður innan þessara flokka hugmyndafræðilega og stefnulega. Enda stunda þessir flokkar báðir næstum því sömu stefnu í raun, munurinn er helst sá að hvernig stefnan er klædd upp og sýnd almenningi. Þar er talsverður munur en í raunveruleikanum er enginn munur á stefnum þessara flokka og hefur aldrei verið. Báðir þessar flokkar ganga erinda sérhagsmunahópa á Íslandi, sérstaklega í Bændasamtökum Íslands, sjávarútvegi og síðan þeirra sem vilja tryggja einangrun Íslands frá umheiminum. Svo mikil er græðgin innan þessara flokka að ekkert skiptir meira máli hjá þeim heldur en þeirra eigin hagsmunir og það er allt gert til þess að tryggja þá. Enda eru báðir þessir flokkar reknir eins og einkafyrirtæki tveggja fjölskylda.

Hinir stjórnmálaflokkanir á Íslandi

Fyrir utan Pírata, sem ég tel að séu ennþá tiltölulega óspilltir (ég á eftir að sjá hvernig vald fer með þá og stefnu þeirra). Þá er ljóst að hinir stjórnmálaflokkanir séu jafn mikið spilltir og sjálfstæðisflokkurinn og framsóknarflokkurinn. Það er nákvæmlega enginn munur þar á milli. Það sést mjög vel á undanförnum árum þegar Samfylkingin og Vinstri Grænir drápu báðir nýja stjórnarskrá Íslands vegna þess að Sjálfstæðisflokkurinn og framsóknarflokkurinn fóru fram á það og í reynd héldu uppi málþófi á Alþingi þegar átti að koma nýrri stjórnarskrá í gegn (sjá hérna og hérna). Eftir að fullnaðarsigur var unnin gegn lýðræðisumbótum á Íslandi þá kom í ljós að það sem hafði sést á Alþingi var bara hálf sagan og varla það. Þáttur Samfylkingarinnar (sjá hérna) í að drepa nýja stjórnarskrá Íslands er mjög augljós og verður verkefni sagnfræðinga (sjá hérna) í framtíðinni að komast að því hvað gekk þarna á.

Fjölmiðlar á Íslandi

Á Íslandi er meirihluti fjölmiðla komnir undir tvær blokkir. Þær blokkir eru sjálfstæðisflokkurinn (beint og gegnum milliliði) og síðan framsóknarflokkurinn í gegnum milliliði. Það eru einstaka fjölmiðlar sem eru sjálfstæðir en þeir standa illa oft á tíðum og stafar stöðug hætta af því að geta verið til í dag en horfnir á morgun. Blaðamönnum er ennfremur ekki tryggt það sjálfstæði sem þarf til þess að reka almennilega rannsóknarblaðamennsku, ásamt lágum launum, lélegri ritstjórn og löngum vinnudegi. Eini fjölmiðill landsins sem hefði með réttu átt að standa styrkum fótum í dag er Ríkisútvarpið en það er ekki raunin. Að færa fjármálavald Rúv til Alþingis var og hefur alltaf verið viljandi aðferð sjálfstæðisflokksins og framsóknarflokksins til þess að ná tökum og stjórna umræðu Rúv um þá og þeirra verk. Eins og sést hefur, þá hafa þessir flokkar ekki verið óhræddir við að nota vald sitt til þess að skera niður Rúv, hóta fréttamönnum (sem er oft hunsað) og almennt gera allt sem í þeirra valdi til þess að hafa áhrif á umræðuna. Þetta hefur virkað að einhverju leiti, enda er erfiðara að fjalla um mál sem skipta máli þegar búið er að skera niður allt fjármagn sem þarf í slíkan fréttaflutning og ekki bætir úr skák þegar stjórnarmeirihlutinn hótar niðurskurði ef fjölmiðlamenn haga sér ekki að óskum viðkomandi stjórnmálamanna (sjá hérna, hérna og hérna). Þetta er staða sem er hættuleg en þetta er einnig staða sem var viljandi sett upp af stjórnmálamönnum á Íslandi og þeir hafa engan áhuga á því að breyta þessu. Þar sem fjárlagavaldið gefur þeim ómæld völd til þess að þagga niður í óþægilegum fréttaflutningi sem nær til allra landsmanna á Íslandi.

Efnahagsmálin á Íslandi

Síðan efnahagshrunið árið 2008 hafa efnahagsmálin á Íslandi verið mjög undarleg. Enda er hagkerfið allt saman komið undir hæl nokkura aðila og í reynd í hendur nokkura fjölskyldna á Íslandi. Núna er komin upp sú staða í hagkerfi Íslands að ef einn aðili fellur þá munu allir aðilar falla, gildir þá einu hversu stórir eða litlir þeir eru. Þetta sést mjög vel á eignargröfum sem komu fram í fjölmiðlum fyrir nokkrum vikum síðan og er hægt að skoða hérna, hérna og hérna. Þetta er bæði hættulegt og glæfralegt, bendir einnig til þess að lærdómurinn af efnahagshruninu árið 2008 hafi verið nákvæmlega enginn og þar við situr.

Þvert á góða efnahagsstefnu þá hefur Seðlabanki Íslands verið að hækka stýrivexti. Þetta virðist vera eingöngu gert til þess að hækka verðbólgu, það er þó ekki að gerast eins og hagfræðingar Seðlabankans búast við þar sem þeir skilja ekki hvað er í gangi og hvernig á að bregðast við því. Verðbólga án húsnæðis er ekki nema 0,5% á Íslandi núna um þessar mundir og 1,5% með húsnæði. Ég skil ekki afhverju Seðlabanki Íslands er að auka vaxtabirði íslendinga með þessum aðgerðum sínum, þar sem það minnkar kaupmátt og gerir endurgreiðslu lána af öllum gerðum erfiðari, þar sem aukinn vaxtakostnaður skerðir möguleika fólks á að nota peninginn í annað nytsamlegra, svo sem matvælakaup, endurnýjun á nauðsynlegum búnaði heimilis og fleira þannig. Ég reikna fastlega með frekari vaxtahækkunum á Íslandi, enda virðist stefnan vera sú að skerða kaupmátt almennings eins og hægt og halda kaupmætti niðri með skipulegum hætti. Stefnan ætti og þarf að vera jöfn kjör og stöðugleiki í efnahag Íslands en ljóst er að það gerist ekki og mun aldrei gerast á Íslandi á meðan hugsunarhátturinn er eins og hann er í dag.

Samskipti Íslands við umheiminn

Það hefur verið óopinber stefna núverandi ríkisstjórn (frá kosningum 2013 – 2017) að koma á þeirri stefnu að einangra Ísland frá Evrópu varanlega. Þessi stefna hefur þann tilgang að færa Ísland nær Bandaríkjunum, bæði efnahagslega og þjóðfélagslega. Þessari stefnu hefur verið fylgt eftir í gegnum samtök eins og Heimssýn og fleiri aðili sem tala gegn Evrópusambandinu. Þær breytingar sem er verið að gera í heilbrigðiskerfinu og menntakerfinu á Íslandi eru þannig settar upp að kerfið er að hluta til orðið eins og það kerfi sem Bandaríkjamenn nota og á ekkert skylt lengur við það kerfi sem er notað á hinum norrænu löndum. Sérstaklega Noregi, Svíþjóð og Danmörku. Umræðan um að fara úr Schengen samstarfinu hefur eingöngu þann tilgang að koma af stað afsökun svo að ríkisstjórnin geti fundið tylliástæðu til þess að segja upp Schengen og taka upp fast vegabréfaeftirlit á Íslandi.

Úrsögn Íslands úr EES virðist einnig vera þessum aðilum hugleikinn. Ástæða þess að ekki hefur orðið að þessu er sú staðreynd að Bandaríkin hafa ekki sýnt neinn áhuga á því að styðja Ísland um nokkurn hlut. Þó er alveg ljóst að breytt varnarstaða vegna hernaðarbrölts Rússlands er að æsa þessa aðila í að koma Íslandi úr Schengen og EES, jafnvel er hugsanlegt að það verði gengið svo langt að Ísland segi sig úr Norðurlandasamningum, ef slíkt hentar hagsmunum þessara hagsmunaðila sem ráða för á Íslandi. Það er reyndar ekki víst af ekkert af þessu gerist, þar sem hugsanlegt er að Bandaríkin reyni eftir fremsta megni að forðast sérhagsmunaklíkunar á Íslandi og þeirra græðgi.


Hinir fúnu innviðir Íslands

Eins og sést hérna að ofan þá er staðan á Íslandi frekar slæm og fúin. Það er mjög mikið og stórt vandamál fyrir alla íslendinga að svo sé. Það versta er að líklega er ekkert hægt að gera í þessu. Ef Píratar komast til valda á Íslandi (eins og ég reikna með að gerist eftir næstu kosningar til Alþingis), þá er engu að síður til staðar kerfi á Alþingi og utan þess sem mun berjast við þá alla leiðina og allt kjörtímabilið. Annað hvort þangað til að Píratar gefast upp eða láta eftir kröfum þessa kerfis sem er til staðar í dag. Þetta er ein af þeim ástæðum afhverju ríkisstjórn Samfylkingingar og Vinstri Grænna gekk svo illa að koma sínum málum í gegnum Alþingi og jafnvel ráðuneytin. Kerfið sem er til staðar sá rækilega til þess að ekkert breyttist og í dag er þetta kerfi ennþá til staðar og passar rækilega uppá þá hagsmuni sem því hefur verið sagt að passa upp á. Þetta er staðan í dag og þetta er mjög slæm staða til þess að vera í.

Dagurinn þegar Ísland hættir að vera til sem ríki

Eins og ég nefni fyrst í þessari grein þá er ástæða þess að Ísland fékk sjálfstæði frá Danmörku sú staða sem komin var upp eftir að þjóðverjar höfðu ráðist inn og hertekið Danmörku. Íslendingar notuðu sér þá lagaholu í samningum um fullveldi íslendinga við Danmörku til þess að lýsa yfir sjálfstæði frá Danmörku. Þar sem ekki var hægt að semja um áframhaldandi veru Íslands í konungsríkinu Danmörku. Það er mér til efins að íslendingar hafi verið tilbúnir til þess að verða sjálfstæð þjóð með allri þeirri ábyrgð sem því fylgir, eins og atburðir frá árinu 1944 hafa sýnt. Auk allrar þeirra spillingar sem hefur ríkt á þeim tíma á Íslandi. Eitt af betri dæmum það hversu óundirbúnir íslendingar voru og eru fyrir sjálfstæði er sú staðreynd að núna 71 ári eftir að íslendingar lýstu yfir sjálfstæði er ennþá í gildi stjórnarskrá á Íslandi sem var eingöngu hugsuð til sex mánaða á meðan ný stjórnarskrá yrði samin fyrir Ísland og allar tilraunir til þess að setja nýja stjórnarskrá hafa verið stoppaðar af. Þetta er grunnurinn að þeim stjórnmálavandamálum sem eru ríkjandi á Íslandi og þetta er einnig grunnurinn að falli Íslandi sem ríkis. Ekki veit ég hvað mun valda því að allt kerfið hrynur á Íslandi.

Mér þykir þó líklegast að næsta efnahagskreppa á Íslandi muni reyna mjög mikið á fúna og skemmda innviði Íslands á pólitíska sviðinu. Hvort að það verður atriðið sem veltir öllu um koll veit ég ekki, ef það gerir það ekki, þá er ljóst að næsta efnahagskreppa mun eingöngu auka skemmdirnar og hið fúna kerfi á Íslandi. Sagan segir mér einnig að friður er ekki varanlegur í Evrópu, jafnvel þó svo að Evrópusambandið muni tryggja frið milli sinna aðildarríkja. Þá er alveg ljóst að önnur öfl innan Evrópu munu líklega ná að koma af stað stríðum á einhverjum tímapunkti og þá er ljóst að staða Íslands sem sjálfstæðs ríkis mun standa mjög tæpt.

Enda er Lýðveldið Ísland afleiðing seinni heimstyrjaldarinnar og fullveldið sem fékkst árið 1918 var í raun bein afleiðing af styrjöldinni í Evrópu árin 1914 – 1918. Sú staða sem íslendingar njóta núna í alþjóðasamfélaginu getur breyst og mun breytast hratt ef óstöðugleiki kemst á núverandi skipulag og það er alveg ljóst að óstöðugleiki er kominn í kerfið eftir að Rússland innlimaði Krímarskaga í Mars 2014 hleypti óstöðugleika í núverandi skipan ríkja í Evrópu. Það er ekki ljóst ennþá hvaða afleiðingar þetta mun hafa til lengri tíma en mér þykir ljóst að þær verða ekki góðar eða jákvæðar fyrir íslendinga.

Það er engin framtíð á Íslandi

Undanfarna daga hefur Sigmundur Davíð verið hissa á því afhverju fólk er að flytja frá Íslandi. Sérstaklega þegar allt gengur svona vel, staðreyndin er hinsvegar sú að það gengur bara vel hjá sérhagsmunafólkinu núna í dag. Hjá hinum almenna Íslendingi sem þarf að lifa af þeim launum sem hann fær borgað, þá er staðan mjög slæm og fer stöðugt versnandi vegna hækkandi vaxta, minnkandi kaupmáttar vegna hærri vaxta og stöðugt hækkandi verðlags á Íslandi. Það sem eykur einnig á vandann er sú staðreynd að flestir íslendingar sem eru almennir launamenn hafa ekki efni á því að koma sér þaki yfir höfuðið, þar sem þeir standast ekki greiðslumat bankanna og hafa hvort sem er ekki efni á húsnæðislánum, þá annaðhvort vegna hárra vaxta eða vegna verðtryggingar sem er á mörgum húsnæðislánum í dag. Hinn almenni íslendingur er fastur á milli steins og sleggju og getur sig hvergi hreyft. Það kemur því ekki á óvart að íslendingar flytji frá Íslandi eins og tölunar segja til um.

Ég hef verið búsettur á Íslandi síðustu 11 mánuði og það er alveg vonlaust fyrir mig að láta nokkurn skapaðan hlut ganga upp. Sérstaklega þegar það kemur að jafn einföldum hlut eins og fjármálum. Enda er erfitt að lifa á örorkubótum sem eru langt fyrir neðan lágmarksframræslu eins og Velferðarráðuneytið setur hana upp án húsnæðiskostnaðar. Síðan er hvergi hægt að fá leiguhúsnæði á Íslandi, þökk sé undarlegum reglum og fáránlegum kröfum þegar það kemur að félagslegu húsnæði, sem bindur öryrkja í ánauð við það sveitarfélag þeir búa í þá stundina. Síðan eru allstaðar biðlistar eftir félagslegu húsnæði á Íslandi og í öllum tilfellum er biðlistinn mörg ár og að jafnaði tvö ár eftir athugunum sem ég hef gert á stöðunni.

Stefnan hjá mér er mjög skýr. Ég flyt aftur til Danmerkur árið 2016 og ég ætla mér ekki að flytja aftur til Íslands. Það er ekkert að fá útúr því að gera slíkt og allar hugmyndir um að það sé einhvernvegin betra að búa á Íslandi eru í minnsta falli sjálfblekking og í versta falli er ég að ljúga að sjálfum mér um stöðuna á Íslandi.

Þessi grein er skrifuð með fyrirvara um leiðréttingar, hvort sem er stafsetningarleiðréttingar og leiðréttingar á staðreyndum ef villur leynast í þeim. Það ætti ekki að gerast en mistök eru alltaf möguleiki.

Nauðsynlegt að loka Heimssýn með valdi

Sá skaði sem óheilla og þjóðrembusamtökin Heimssýn hafa valdið hinum almenna Íslendingi telst í milljöðrum ofan á milljarða króna. Ekki eingöngu hafa þessi samtök núna logið stöðugt að íslendingum, heldur hafa þau einnig komið sínum mönnum til valda á Alþingi íslendinga og í ríkisstjórn Íslands. Afleiðinganar eru þær að Ísland er núna einangrað í Evrópu, bæði pólitísk og efnahagslega séð. Enda gerist ekkert annað í efnahag íslendinga þessa dagana nema stöðnun. Það eina sem heldur hagkerfi íslendinga á floti þessa mánuðina eru ferðamennirnir og þeir gætu farið annað hvenær sem er án fyrirvara.

Síðan er það staðreynd að samtökin Heimssýn eru ekkert annað en fasista samtök í eðli sínum með ógeðfelldar skoðanir sem byggja á kynþáttahatri, þar sem hinn „hreini“ Íslendingur er álitin ofar öðrum íbúum Evrópu. Slíkt er auðvitað tómt rugl frá erfðafræðilegu sjónarmiði, þetta er hinsvegar sú hugmyndafræði og sá áróður sem samtökin hafa rekið frá stofnun undir rós með hrikalegum afleiðingum fyrir íslendinga almennt. Heimssýn eru samtök sem færa íslendinga til fortíðar en ekki til framtíðar. Slíkt er ekki ásættanlegt fyrir almenning á Íslandi. Síðan standa samtökin einnig fyrir gífurlega hagsmunagæslu yfirstéttarinnar á Íslandi, útgerðarinnar (SFS), Bændasamtaka Íslands (Kaupfélag Skagfirðinga) og fleiri aðila sem hafa mikla hagsmuni á því að geta haldið sínum launamönnum fátækum með notkun íslensku krónunnar, ásamt hárri verðbólgu og vöxtum.

Ég legg til að öllum skrifstofum Heimssýnar verði lokað með öflugum hengilásum úr sérstaklega sterku stáli.

Ritskoðunarárátta Heimssýnar og hræðslan við rökræður

Heimssýn er klúbbur gamalla kommúnista og nasista á Íslandi, flestir sem í þessum hópi eru komnir á ellilífeyri og enda flest allir fljótlega undir grænni torfu. Þó ekki nógu hratt, þar sem þessir fábjánar og þrönsýnismenn og konur eru að valda íslendingum miklu tjóni með því að koma kerfisbundið í veg fyrir aðild Íslands að Evrópusambandinu. Síðan er þetta fólk hrætt við umræðuna og ritskoða alla þá sem ekki eru sammála þeim og á móti Evrópusambandinu.

Ég setti inn athugasemd hjá þessu fólki í morgun, henni hefur verið eytt en þar sem ég vissi af ritskoðunar og fælni þessa fólks við að takast á við rökræðuna þá tók ég mynd af svarinu mínu sem ég hafði sett inn hérna.

heimssyn.blog.is.26.06.2015.07.48.utc
Heimssýn ritskoðaði mig aftur. Tekið af vefsíðu Heimssýnar í morgun.

Ég tek vissulega hart til orða en það þýðir ekkert að fara varlega í kringum þessa fávita sem hafa núna valdið milljarða tjóni á samskiptum Íslands við Evrópu með eintómum fábjánahætti sínum og þröngsýni. Það verður að stoppa þetta fólk, enda er framtíð Íslands sem ríkis í hættu ef þetta fólk verður ekki stoppað.

Stjórnlaus þröngsýni skaðar viðskipti íslendinga við útlönd

Fréttamiðilinn Stundin flettir ofan nýjustu spillingu á Íslandi og sýnir þar fram á hvernig hagsmunir Íslands skaðast vegna spillingar í hæstu valdastöðum á Íslandi. Nýjasta dæmið sýnir hvernig íslendingar eru að láta frá sér markað 510 milljón manna (rúmlega) og vilja í staðinn fara á markað þar sem eingöngu eru rúmlega 130 milljónir manna (Rússland).

Þetta er auðvitað heimska af hæstu gráðu sem er um að ræða hérna og afskaplega slæmt vit á viðskiptum að haga málum svona og gífurlega mikla þröngsýni á viðskipti og heiminn í kringum Ísland. Sérstaklega þar sem Stundin nefnir í sínum greinum að Kaupfélag Skagfirðinga vill ekki fá greitt í peningum fyrir þær vörur sem eru sendar út. Heldur vill KS fá greitt í timbri, olíu og fiski í staðinn fyrir lambakjöt. Helstu talsmenn vöruskipta á Íslandi er fornmaðurinn Guðni Ágústsson, auk Jóns Bjarnarsonar sem tafði aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu til loka síðasta kjörtímabils þegar hann var ráðherra í ríkisstjórn Vinstri Grænna og Samfylkingar.

Það er ekkert annað en hrein geðveiki að fórna markaði uppá 500 milljónir manna í staðinn fyrir ótraustan markað í Rússlandi, þar sem er ekki víst að nokkuð fáist greitt upp í það sem sent er vegna stöðu efnahagsmála í Rússlandi. Síðan er hérna um að ræða afskaplega slæma meðferð á utanríkismálum Íslands og staðan þar getur og mun væntanlega eingöngu versna á næstu mánuðum á meðan núverandi ríkisstjórn er við völd á Íslandi.

Til þess að fá frekar upplýsingar um hvað málið snýst. Þá hvet ég fólk til þess að lesa ítarlega fréttir Stundin. Áskriftar er krafist.

Skagfirsku áhrifin á viðræðuslitin við ESB (Stundin)
Ísland tvíeflist í útflutningi til Rússlands í kjölfar innflutningsbanns (Stundin)

Fólkið sem veit ekkert um Evrópusambandið á YouTube

Heimssýn / Nei við ESB hafa gefið út tvö myndbönd þar sem tekin eru viðtöl við fólk sem augljóslega veit ekkert um Evrópusambandið.

Það er mjög einfalt að afsanna allar þessar fullyrðingar sem þetta fólk segir með einfaldri leit á internetinu. Síðan eru það er staðreynd að sáttmálar Evrópusambandsins eru mjög skýrir og hægt að lesa þá á vefsíðu Evrópusambandsins.

Það skal tekið fram að allar helstu réttarbætur sem íslendingar hafa fengið á síðustu áratugum eru komnar frá Evrópusambandinu og undanförum þess, auk aðildar Íslands að EFTA færði íslendingum miklar réttarbætur og kjarabætur. Mikið af þessu fólki barðist einnig á móti aðild Íslands að EFTA með nákvæmlega sömu „rökum“ og eru notuð í þessu myndböndum sem Heimssýn / Nei við ESB hafa útbúið og sett á YouTube.

Fyrsti hluti (varúð, mjög mikil heimska og 19 aldar hugsunarháttur)
Annar hluti (varúð, ennþá meiri heimska)

Grein uppfærð klukkan 01:47 UTC.

Evrópuvaktin gefst upp og lokar

Evrópuandstæðingar á Íslandi eru loksins farnir að átta sig á stöðu mála og þeirri staðreynd að á Íslandi mun ekkert breytast, hvorki efnahagslega eða stjórnmálalega fyrr en ísland gengur í Evrópusambandið (og meðal annars tekur upp evruna sem gjaldmiðil). Á þessu hafa þeir sem reka vefinn Evrópuvaktina áttað sig á og þeir umsvifalaust lokuðu vefnum í kjölfarið þegar þeir áttuðu sig á þessari staðreynd.

Staðreyndin er sú að aðild Íslands er mjög nærri og gæti hugsanlega gengið í gegn eftir næstu alþingiskosningar ef stjórnmálaflokkar sem styðja aðildarviðræður Íslands og Evrópusambandsins komast til valda, eitthvað sem er í raun engan veginn tryggt, miðað við hvernig íslenskir kjósendur haga sér í dag. Næst vonast ég til þess að Heimssýn átti sig á staðreyndunum og loki einnig. Það er þó ólíklegra, þar sem þeir búa eru hreinir þjóðernissinar í bland við annað öfgafólk. Það fólk er ekki líklegt til þess að láta af þeim ranghugmyndum sem það hefur um Ísland, íslendinga og efnahagslega stöðu Íslands.

Heimssýn neitar að ræða Evrópusambandið

Það er ómerkileg grein sem starfsmenn Heimssýnar skrifa á bloggsíðu þeirra núna í kvöld. Þar er því haldið fram að Heimssýn þori að ræða málin, á meðan Evrópusinnar þori því ekki. Ekkert gæti verið fjarri sannleikanum, þar sem Heimssýn hefur aldrei þorað að ræða málin um Evrópusambandið. Enda er það svo að í dag eru umræður á bloggsíðu Heimssýnar eingöngu stundaðar af andstæðingum Evrópusambandsins og inngöngu Íslands þar inn. Það sem Heimssýn hefur gert er að banna þá sem vilja að Ísland gangi í Evrópusambandið. Á þeim grundvelli að „dónaskapur“ hafi verið viðhafður, breytir þá engu andstæðingar Evrópusambandsins hafa oft vaðið þarna uppi með skít, hótunum og lygum um menn og málefni. Umræddir aðildar fá ennþá að tjá sig á bloggsíðu Heimssýnar í dag.

Það er ekki flókin staðreynd að sjá afhverju þetta stafar. Heimssýn og andstæðingar Evrópusambandsins á Íslandi hafa ekkert til síns máls. Enda hafa „rök“ þeirra verið tekin sundur af öllum sem nenna að gera slíkt. Enda halda „rök“ þeirra ekki vatni frekar aðrar lygar sem frá þeim hafa komið, gott dæmi um slíkt kom fram í kvöld þegar Vigdís Hauksdóttir hélt því fram að Evrópusambandið væri Lisabon sáttmálinn [sáttmálann er hægt að lesa hérna í heild sinni]. Lisbon sáttmálinn er bara einn af mörgum sáttmálum sem er í gildi innan Evrópusambandsins. Það að halda öðru fram er lygi í versta falli og blekking í besta falli. Þetta vill Heimssýn ekki ræða og hefur aldrei viljað ræða, enda grípa samtökin og fólk sem þar er innandyra alltaf til blekkinga og lyga þegar á að fara að ræða málin af alvöru. Haga sér í raun eins og óþroskaðir fábjánar þegar á að fara ræða málin af fullri alvöru. Það hefur einnig sannast í gegnum tíðina að innan Heimssýnar er gífurleg vanþekking á Evrópusambandinu, þar er frekar trúað áróður og lygar erlendis frá, áróður sem oftast á uppruna sinn til ýmissa öfgasamtaka og öfgafólks sem finnst í Evrópu.

Áróður Heimssýnar helst ennfremur í hendur við þann áróður sem Bændasamtök Íslands breiða út í gegnum Bændablaðið. Þar hef ég oft lesið eina og fleiri þvælu um Evrópusambandið og landbúnað innan aðildarríkja Evrópusambandsins. Ástæðan fyrir þessu er mjög einföld, það er bandalag milli Heimssýnar og Bændasamtaka Íslands (og framsóknarflokksins og sjálfstæðisflokksins) um andstöðuna gegn aðild Íslands að Evrópusambandsins og ekkert er heilagt og virt í þeirri baráttu, eins og dæmin hafa sannað á undanförnum árum og núna nýlega. Það er einnig ljóst að andstæðingar Evrópusambandsins munu aldrei fást til þess að ræða hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þeir einfaldlega hafa ekki áhuga á því og hafa aldrei haft hann. Það eina sem mun gerast á næstunni er aukinn áróður mun koma frá Heimssýn og tengdum aðilum varðandi það hversu „slæmt“ Evrópusambandið sé, þó án þess að nefna nokkur dæmi eða staðreyndir máli sínu til stuðnings.

Evrópusambandið tekur ekki mark á ríkisstjórn Íslands

Það er ljóst að Evrópusambandið veit að bréf Gunnars Braga (Utanríkisráðherra) hefur ekki fengið þinglega meðferð á Íslandi. Það þýðir einfaldlega að Evrópusambandið og ráðamenn þess taka við umræddu bréfi og gera síðan ekkert meira með það. Enda vita þeir sem er að þetta bréf er markleysa og það ber að meðhöndla það sem slíkt. Þetta þýðir einnig að minni líkur eru á því að Evrópusambandið muni taka mark á ríkisstjórn Íslands það sem eftir lifir af valdatíma núverandi ríkisstjórnar.

Síðan hvet ég almenning til þess að bjóða sjálfum sér í veislu á Hótel Sögu sem Alþingi er að halda núna í kvöld. Það er það minnsta sem almenningur getur gert núna. Enda er hérna verið að nota peninga almennings í þessa veislu, eitthvað sem síðasta ríkisstjórn hætti með á síðasta kjörtímabili.

Ríkisstjórn Íslands segi tafarlaust af sér

Ég hér með krefst þess að ríkisstjórn Íslands segi tafarlaust af sér. Á sama tíma verði einnig hafin rannsókn á embættisverkum þessar ríkisstjórnar, ráðherrum þeirra og þeir dregnir fyrir dómara og dæmdir fyrir glæpi sína ef einhverjir eru. Það er ennfremur alveg ljóst að Utanríkisráðherra hefur brotið gegn þrískiptingu ríkisvaldsins eins og sagt er fyrir um það í stjórnarskrá Íslands. Slíkt telst vera refsivert athæfi samkvæmt íslenskum lögum um ráðherraábyrgð. Fyrir þetta verður Utanríkisráðherra að sæta refsingu sem og aðrir ráðherrar sem hafa samþykkt þetta skjal. Síðan má einnig benda á þá staðreynd að þetta skjal sem Utanríkisráðherra afhenti Evrópusambandinu og ráðmönnum þess er ólöglegt. Þar sem það hefur ekki verið samþykkt af alþingi og er því ekki löggilt afstaða Alþingis íslendinga. Enda er samkvæmt íslenskri stjórnsýslu ætlast til þess að ráðherrar framkvæmi vilja Alþingis, þetta virkar ekki á þann hátt sem íslendingar eru núna að sjá.

Síðan legg ég til þess að íslendingar mótmæli þessu af fullum krafti (þegar veður leyfir) og núverandi ríkisstjórn verði hrakin frá völdum með illu ef ekki dugar annað til. Það er komið nóg af þeirri valdníðslu sem núverandi ríkisstjórn Íslands stendur í þessa dagana.

Fréttir þessu tengdu

Ísland ekki lengur umsóknarríki að ESB (Rúv.is)