Andstæðingar ESB neita því fastlega að vera fasistar, eins og ég hef réttilega bent á. Það er þó ekki nóg. Heldur beita andstæðingar þeirri aðferð oft á tíðum að gera fólki upp geðsjúkdóma og annað slíkt þegar þeim gengur illa að koma með haldbær rök fyrir máli sínu.
Hérna eru nokkur dæmi um slíkan málflutning sem er beitt gegn mér.
Frímann þezzi býr á Hvammztánga, viljandi, & dundar zér við að leza á jarðzkjálftamæla & glápa upp í himinhvoflið til ztjarnanna þezz á milli…
Að öðru leiti líklega hinn vænzti drengur, þrátt fyrir þráhyggju þá að vilja vera eitthvað umræðuverður um EZB blæti zitt…
Steingrímur Helgason, 11.3.2010 kl. 01:12
Hérna er verið að saka mig um að vera þrjáhyggjusjúkdómur, og að vísindaleg þekking og áhugi sé í raun slæmur og beri að varast. Þarna er auðvitað einnig tekið þannig í málið að ESB sé slæmt og beri að varast. Svona málflutningur er auðvitað til skammar og niðurlægingar.
Fleiri dæmi.
Verð að taka undir hvert orð með þér Jón Baldur, ég las þennan líka fruntalega reiðilestur Jóns Frímanns í gær og hann er honum og ESB innlimunarsinnum alls ekki til framdráttar nema síður sé.
[…]
Maður getur því ekki tekið svona órökstuddum níðskrifum þessa blinda ESB trúboða neitt alvarlega.
Frekar að við eigum að vorkenna þeim og endilega skulum við fyrirgefa þeim glópskuna.
En Íslandssagan mun að sjálfsögðu dæma svona málflutning og svona menn menn í fyllingu tímans.
Hann er greinilega ekki í jafnvægi útaf þessum hlutum drengurinn.
[…]
Gunnlaugur Ingvarsson 11.3.2010 kl. 12:30
Hérna er verið að gera mér upp andlegt ójafnvægi. Það er auðvitað venjulegt að maður reyðist. Sérstaklega þegar maður sér andstæðinga ESB endurtaka sömu lygina í eittþúsundastaskiptið eftir að maður leiðrétti þá. Þarna er einnig verið að gefa í skyn að ESB innlimi lönd, þetta er auðvitað ekkert nema lygi.
Áfram með þessar athugasemdir hjá Jóni Baldri.
[…]
Reiðin og vonbrigðin í færslunni skína í gegn. En þegar trúarskoðanir fólks eru skoraðar á hólm þá eru viðbrögðin venjulega í þessa átt.
Þorgeir Ragnarsson 11.3.2010 kl. 13:14
Hérna er verið að gera mér upp trúarbrögð, hvorki meira eða minna. Þetta er auðvitað ekkert nema þvílíka dellan og vitleysan.
Hérna er síðan athugasemd eftir kvikmyndagerðarmannin Jón Steinar, sem þó virðist hvorki kunna að skammast sín eða hafa nokkurt vit á því sem hann er að segja. Hann er ennfremur að gera mér upp þrjáhyggju og annað miður.
Jón Frímann á bágt blessaður og ástæðulaust að taka hann alvarlega. Drengur, sem fer varla út fyrir hússins dyr þarna í afdölum. Er með þráhyggju og leiðist óskaplega. Annar svona kjáni er Ómar Bjarki, sem býr einhverstaðar á afskekktu býli við strönd seyðisfjarðar. Að þessir piltar skulu vera helstu talsmenn glóbalisma á Íslandi og andstæðingar lýðræðis, fullveldis og sjálfstæðis, er ákveðið gleðiefni. Vanstilltir ómenntaðir kjánar og nobodys. Trailertrash. Ég skil ekki að fólk nenni að elta ólar við slíkt.
Jón Steinar Ragnarsson, 11.3.2010 kl. 14:03
Menn skulu svo ekki gleyma því að vera þakklátir fyrir þann ómælda stuðning, sem Jón Frímann veitir bandalagsandstæðingum í hvert skipti sem hann sest við lyklaborðið. Fátt hefur væntanlega gefið mönnum meiri byr í seglin.
Jón Steinar Ragnarsson, 11.3.2010 kl. 14:08
EfJón Frímann drullaðist svo til að lesa copy paste sitt af wikipedia um Fasisma og setti það í samhengi við Evrópubandalagið, þá ætti hann að sjá hin augljósu tengsl hugsjónar hans við stefnuna, enda er það öllum ljóst nema honum að hugmyndin um evrópubandalagið sprettur úr jarðvegi fasismans. Hann þarf ekki annað en googla smá til að komast að því.
Jón Steinar Ragnarsson, 11.3.2010 kl. 14:14
Þrátt fyrir stórar og feitar yfirlýsingar í kvikmyndagerðarmanninum Jóni Steinari, þá í reynd kemur hann með minna en hann lofar. Það er ennfremur ákveðin kaldhæðni að sjá þessar fullyrðingar hans Jóns Steinars hérna að ESB sé fasískt, vegna þeirrar sögulegru staðreyndar að ESB var stofnað gegn einræðisstjórnum og fasisma eftir seinni heimsstyrjöldina. Þetta mundi Jón Steinar vita ef hann hefði kýkt sögubækur um Evrópu eftir seinni heimsstyrjöldina. Þarna er Jón Steinar ennfremur að gera mér upp sjúkdóm (þráhyggju) sem ég er ekki með, og hef aldrei verið með.
Áfram með þetta. Hérna er svar frá einhverjum sem þykist þekkja mig. Það má vel vera að viðkomandi kannist við mig, en hann þekkir mig örugglega ekki.
Þekki drengstaulann,hef aldrei nennt að svara hans bloggi,tilgangslaust að svara mönnum sem eru blindir eins og ný fæddir kettlingar. Hvar sem hann hefur fengið þessa ESB flugu veit ég ekki,sem betur fer er hér nær einhugur um að ESB aðild sé ekki vænlegur kostur.
Ragnar Gunnlaugsson, 11.3.2010 kl. 15:33
Að gera mér upp andlega blindu er fáránlegt. Sérstaklega í ljósi þess að bæjarfélög eins og Hvammstangi mundu hagnast margfalt á að ganga í ESB, enda fengi bæjarfélag eins og Hvammstangi styrki og aðstoð úr byggðaráætlun ESB við að styrkja atvinnuvegi, bæta þjónustu við íbúa osfrv. ESB andstaðan á Hvammstanga kann að verða skammlífari en Ragnar Gunnlaugsson grunar.
Það er því miður þannig sem andstæðingar ESB fara með Evrópusinna á Íslandi. Gera þeim upp geðsjúkdóma, geðveiki og annað slíkt þegar þeir eru orðnir röþrota og geta ekki varið vitleysuna í sjálfum sér nema með þessum hætti. Þetta eru auðvitað ekkert nema pólitísk skítabrögð með meiru.
However, manufactured, irrelevant, cruel and incorrect rumors or outright falsehoods designed to damage or destroy an opponent are easily described as dirty tricks. They serve to tie up the opponent into defending against and answering false charges rather than explaining their policies and platform.
Sometimes dirty tricks are not only aimed at slandering the opponent. Dishing the dirt against your candidate’s opponent can be effective at alienating voters in order to turn them off from the entire project. These tactics may reduce turnout in order to assure your candidate gains by having his/her core voters show up at the polls; thus, an operative molds the outcome by angering everyone.
Tekið héðan.
Allar athugasemdinar eru teknar af blogg Jón Baldurs.
Eru sjálfstæðissinnar fasistar?