Samráð gegn Baugi ?

Ég rakst á þessa frétt á vísir.is

Höfðu samráð um kæru gegn Baugi

Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins, Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, og Jón Steinar Gunnlaugsson, nú hæstaréttardómari, funduðu um mál Jóns Geralds Sullenberger gegn Baugi í júní 2002, tveimur mánuðum áður en Jón Steinar lagði fram kæru fyrir hönd Jóns Geralds gegn forsvarsmönnum Baugs.

Fréttablaðið hefur undir höndum margs konar gögn sem sýna að Styrmir Gunnarsson, Jónína Benediktsdóttir og Jón Gerald Sullenberger höfðu unnið að undirbúningi málaferlanna gegn forsvarsmönnum Baugs að minnsta kosti frá því í maí þetta sama ár.

Styrmir staðfestir í samtali við Fréttablaðið að hafa haft milligöngu um að koma á sambandi á milli Jóns Geralds og Jóns Steinars. Jón Steinar Gunnlaugsson sagðist í gær ekki vilja tjá sig um málið og þegar gengið var á hann kaus hann að slíta samtalinu. Jónína Benediktsdóttir greip til sömu ráða og Jón Steinar og sleit símtalinu án þess að svara nokkru efnislega.

Í tölvupósti sem Styrmir sendir Jónínu að kvöldi 1. júlí 2002 segir: „Þið þurfið ekki að hafa áhyggjur af þessu með Jón Steinar. Hann er algjörlega pottþéttur maður. Þegar ég talaði um þetta mál við Jón Steinar hafði ég Kjartan með. Þetta er eins innmúrað og innvígt eins og nokkur hlutur getur verið. Ég þekki hins vegar ekki samband Jóns Steinars og Tryggva og mun kanna það. En það er alveg sama hvaða menn Jón Steinar þekkir. Tryggð hans við ónefndan mann er innmúruð og ófrávíkjanleg og þess vegna þurfið þið Jón Gerald ekki að hafa nokkrar áhyggjur.“

Styrmir staðfestir að hann eigi við Kjartan Gunnarsson en neitar að gefa upp hver ónefndi maðurinn er.

Vísir.is

Sjúkdómur í WoW

BBC segir frá því að það hefur komið upp sjúkdómsfaraldur í fjöldaspilaleiknum World of Warcraft. Þessi sjúkdómur kemur til vegna galla í leiknum, fjöldi karaktera hefur fallið fyrir þessum sjúkdóm. Þeir leikjakarakterar sem eru með minnsta styrkinn deyja strax samkvæmt fréttinni, en þeir sem eru sterkari komast af lengur en láta samt í minni pokan fyrir þessari sýkingu. Hægt er að lesa meira hérna

Höfundalögga frá Bandaríkjunum

Bandaríkjastjórn ætlar að koma á fót alþjóðlegri höfundaréttar deild til að berjast við „priacy“ á alþjóðlegum vettfangi. Og er þetta samkvæmt fréttum frá ZDnet í Bretlandi. En aðal planið hjá þeim virðist vera að reyna að mennta erlenda dómara í þeirra höfundarréttarlögum og reyna einnig að koma sínum lögum uppá aðar þjóðir í gegnum alþjóðasamninga. Einnig sem sérfræðingar verða sendir til þeirra landa sem standa verst að höfundarréttarlögum, að þeirra mati. Enda er þetta gert í nafni stórra fyrirtækja. Hægt er að lesa fréttina hérna

Jarðskjálftahrina hjá Herðubreiðarlindum

Það virðist vera farin af stað smá jarðskjálftahrina hjá Herðurbreiðarlindum. Sem stendur þá er hrinan mjög róleg of fáir jarðskjálftar hafa komið fram. Enginn af þeim jarðskjálftum sem hafa komið hafa náð 3 á Ricther. Stærstu skjálftanir sem hafa komið eru rétt yfir tveir á Ricther.

Auglýsingar

Ég ætla að hafa google adsense auglýsingar efst á síðunni. Þannig að ég hef kannski örlitla möguleika á því að ná inn fyrir kostnaði við að vera með bloggið.

Hvít jörð

Það er víst farið að hausta. Allavega er jörð orðin hvít hérna á Hvammstanga hjá mér. Hitastigð er sem stendur í kringum 0C og það er virðist hafa dregið úr slyddunni og þetta virðist vera orðin (nærri því) bara hrein snjókoma. En það er einhver slydda í þessu þrátt fyrir það. Einnig sem það er komin hálka og leiðindi á vegina hérna, að því að ég best fæ séð.

Brjálað veður

Núna er brjálað veður hjá mér og væntanlega á öllu Norð-vesturlandi. Það virðist vera sem svo að þetta sé slydda í gangi núna ásamt hvassviðri. Allavega nauðar í loftstrokknum hjá mér inná baði, eins og gerist alltaf þegar rokið tekur upp. Hitastigið er ekki nema í kringum 1C núna.

Jarðskjálftar hjá Geysi

Síðan í gærkvöldi þá hefur verið smájarðskjálftahrina hjá Geysi í Haukadal. En þarna hafa mælst í kringum 40 jarðskjálftar síðan hrinan byrjaði. En enginn af þessum jarðskjálftum hefur orðið stærri en 2 á ricther. Síðan klukkan 11:19 hefur verið hlé á þessari jarðskjálftahrinu.