Ein af ástæðum þess að ég vil ekki flytja til Íslands

Ég hef margar ástæður fyrir því að vilja ekki flytja aftur til Íslands. Hérna er ein þeirra. Smellið á myndinar til þess að fá þær í betri upplausn. Umræddur maður býr í Reykjavík en er frá Hvammstanga. Hann er búinn með 4. Stig í vélstjórn, sem jafngildir D stigi í vélstjórn núna í dag. Þrátt fyrir það. Þá veit þessi maður afskaplega fátt um það sem þarna er rætt. Hann gerir heldur enga tilraun til þess að kanna málið fyrirfram. Takið eftir því að hann byrjar á því að kalla mig þröngsýnan og fer síðan í alveg ógurlega fílu þegar ég svara fyrir mig af fullum hálsi.

Ef að ég hefði flutt aftur til Íslands. Þá hefði ég væntanlega flutt aftur á Hvammstanga. Ég er feginn að það verður ekkert úr því. Þar sem ég hætti við að flytja aftur til Íslands.

Ég geri þessar myndir ekki nafnlausar og ég mun ekki fjarlægja þær nema með dómsúrskurði frá Hæstarétti Danmerkur. Enda er lögheimili mitt í Danmörku núna og því er lögsagan þar.






Það má vel vera að hann taki illa í það að vera kallaður drulluhali. Það er þó augljóst að hann stendur fyllilega undir því nafni með þessari hegðun sinni. Ég bendi einnig á þá staðreynd að hann kallaði mig „þröngsýnan“ og „vitlausan“ án þess að færa rök fyrir máli sínu í þessari umræðu. Enda varð hann fljótt röklaus eins og aðrir þarna sem vita ekkert um hvað málin snúast sem þeir voru að tala um.

Á móti ESB aðild, en vilja NAFTA aðild

Myndir segja meira en þúsund orð er máltakið. Þessar hérna tvær myndir segja margt um andstæðinga ESB á Íslandi, sem margir hverjir vilja að Ísland verði aðili að NAFTA, frekar en ESB. Það er reyndar eins undarlegt og hægt er að hafa það. Þar sem Ísland getur ekki orðið aðili að NAFTA, enda er Ísland ekki í Norður-Ameríku og verður það aldrei. Hvorki í menningarlegu tilliti, eða landfræðilegu.

Mynd 1.

Mynd 2.

Vindblásin aska frá Eyjafjallajökli

Á þessari hérna gervihnattamynd NASA sést vel hvernig askan er að blása undan vindi og útí sjó. Þetta er gífurlegt magn af ösku sem þarna blæs undan vindi, enda er skýið sem myndast í kjölfarið gífurlega stórt og mikið um sig.

Landamæri hjá ESB ríkjunum

Andstæðingar ESB halda því ranglega fram að aðildarríki ESB séu ekki sjálfstæð. Ekkert gæti verið fjarri sannleikanum. Hvert og eitt aðildarríki ESB er með sín einkenni og sín eigin landamæri.

Hérna eru nokkrar myndir því til sönnunar.

Landamæri Belgíu og Hollands.

Landamæri Austurríkis og Þýskalands.

Landamæri Þýskalands og Hollands.

Allar myndinar eru fengnar héðan.