Kröfuharðir trúmenn

Á vefnum kirkju.net (sem er vefur nokkura harða trúmanna hérna á landi) er margt um vitleysuna. En það hefur vakið sérstaka athygli mína að þeir krefjast þess að allir sem commenta inná bloggkerfið hjá sér hagi sér vel, skrifi með fullu nafni, þá einni -son og -dóttur endingunni. Einnig að fólk sé háttvíst og fleira í þeim efnum. Þetta væri svo sem ekki mikið umræðuefni nema fyrir þær sakir að þessir menn eru útbreiðslumenn kjaftæðis hérna á landi, og sem slíkir þá virðist þeir þola enga gagnrýni, nema að hún komi í formi silkihanska og uppgerðarlegrar kurteysi.

[Uppfært þann 29 Júní, 2006 klukkan 22:01]