Fylgi sjálfstæðisflokksins á að vera 0 til 10%

Fylgi sjálfstæðisflokksins á í raun að vera 0 til 10%. Sérstaklega í ljósi þeirra glæpa sem margir flokksmenn sjálfstæðisflokksins hafa stundað gegn þjóðinni í mörg ár núna. Íslenska þjóðin kýs hinsvegar að gefa honum 40% stuðning (óákveðnir dregnir frá, sem eru 40% í dag) í könnunum.

Í góðri líkingu, þá má í raun segja að þjóðin sé tilbúinn að bjóða innbrotsþjófunum í kaffi á meðan þeir tæma húsið af öllu verðmætu.

Þetta er hinsvegar þó það sem rúmlega helmingur íslendinga vill í dag. Íslendingar ættu þó að fara varlega í það sem þeir vilja, þar sem þeim gæti orðið að ósk sinni einn daginn.