Öfgatrú á Íslandi

Öfgatrú er að skjóta niður rótum á Íslandi. Ég er ekki að tala um íslamska öfgatrúarmenn, ég er að tala um kristna öfgamenn sem trúa því að Jörðin hafi verið sköpuð fyrir 10.000 árum og að þróun sé ekki til og að vísindum beri að banna og útrýma. Einnig sem að þessi kristni öfgahópur sem er starfandi hérna á landi vill svipta konur öllum þeim réttindum sem þær hafa fengið síðustu 100 árin. Einnig sem að þessir hópar vilja banna fóstureyðingar, jafnvel þó svo að þungunin kosti konuna lífið. Það er fleira sem þessir öfgatrúar hópar vilja, en ég ætla ekki að fjalla sérstaklega um það.

Ég ætla hinsvegar að vara við þeim afleiðingum ef þessir öfgatrúarmenn fá að vaða hérna upp um allt á íslandi án þess að nokkur skapaður hlutur sé gerður til þess að stoppa þá. Það er hætt við að Ísland falli af þeim listum þar sem það er ofarlega ef að öfgatrúmenn fá að vaða uppi hérna á landi óáreittir, sérstaklega ef þessum mönnum tekst að ná völdum, meira en orðið er.

Skrif fjölda fólks sem fellur undir þá skilgreiningu að vera öfgatrúar má finna á blog.is og skrif flest alls þessa fólks er þannig að ætla mætti að það væri nýflutt úr hinum myrku miðöldum til Íslands.