Kynþáttafordómar á Íslandi eru staðreynd!

Þvert á það sem íslendingar trúa um sjálfa sig. Þá er talsvert um kynþáttafordóma á Íslandi. Þetta er auðvitað til skammar á að uppræta úr íslensku samfélagi eins og hvern annan slæman ósið íslendinga. Það hinsvegar gengur illa. Þar sem að í íslensku samfélagi er stöðugur áróður gegn „hættulegum útlendingum“ sem ætla sér að koma og stela „auðlyndum“ íslendinga og fleira í þeim dúr. Svona hræðsluáróður hefur auðvitað þær birtingamyndir að á endanum er ráðist á fólk fyrir það eitt að það velur sér ást og jafnvel maka frá öðru landi en Íslandi.

Núna hefur verið ráðist á íslenska fegða (þeir eru með íslenskan ríkisborgararétt) af kúbverskum uppruna vegna þessa að sonurinn og (íslensk) stelpa felldu saman hugi. Þetta er auðvitað til skammar og á ekki að lýðast á Íslandi eins og áður segir. Ég vona að hinir seku fá þunga dóma í fangelsi fyrir þessi afbrot sín.

Það er alveg skýrt í mínum huga að fólk hefur þann rétt að vera með þeim sem að vill. Það er ennfremur ljóst að enginn hefur rétt á því að ákveða fyrir fólk með hverjum það er. Eins og er hérna verið að gera með hótunum og ofbeldi.

Frétt Rúv.

Feðgar flýja land vegna ofsókna

One Reply to “Kynþáttafordómar á Íslandi eru staðreynd!”

Lokað er fyrir athugasemdir.