Bloggarinn Framandlegur ritskoðar athugasemdir

Bloggarinn Framandlegur sem virðist vera öfgakristinn maður stundar það að ritskoða blogg og ljúga uppá þá sem hann ritskoðar. En hjá honum er þessa fullyrðingu að finna, eftir að hann var búinn að eyða út athugasemd sem ég setti inn hjá honum (engar áhyggjur, það er mynd til af þeirri athugasemd).

Athugasemd fjarlægð frá Jóni Frímanni sem bannar notendur sjálfur á bloggi sínu og ætti að vita betur ef honun er ekki sama um þetta hérna.

Hættu svo þessu með að segjast hafa tekið mynd af athugaemdinni, það gagnast hvort sem er engum nema sjálfum þér.

Þetta er lygi í manninum. Það er aðeins einn maður bannaður hjá mér og það bann mun aðeins gilda í eitt ár, eða rétt 358 daga núna, rétt rúmlega það. Afrit af þessari athugasemd er tekin héðan, þar sem að þessi maður lýgur uppá mig og hvernig ég er með bloggið hjá mér.

Myndin af svari mínu sem Framandlegur henti út er hægt að skoða hérna. Og maðurinn er svo sannarlega lúser með meiru.

Uppfært!
Hérna eru tvær athugasemdir til viðbótar sem Famandlegur eyddi út. Önnur þeirra er frá mér og hin er frá Jóni Steinari.

Hérna er mín athugasemd sem var eytt út.
Hérna er athugasemd Jón Steinars sem Framandlegur eyddi út. Af ástæðulausu.