Páll Magnússon alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn á að segja af sér þingmennsku án tafar

Það er ekki í lagi að alþingismaðurinn Páll Magnússon ráðist gegn frjálsum fjölmiðlum á Íslandi eins og hann hefur verið að gera. Slíkt er brottrekstrarsök af Alþingi íslendinga og því á Páll Magnússon að segja af sér þingmennsku án tafar. Krafan um afsökunarbeiðni er hlægilegt bull sem á ekki að taka mark á.

Yfirgangur sjálfstæðismanna gegn frjálsum fjölmiðlum á Íslandi er eitthvað sem á ekki að líðast og íslendingar ættu að sleppa því að kjósa Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn enda eru báðir flokkanir þjakaðir af draumum um einræði og þöggun frjálsrar fjölmiðla á Íslandi. Slíkt á ekki að lýða enda eru frjálsir fjölmiðlar eina leiðin til þess að stoppa þessa þjófa frá því að ræna íslensku þjóðina inn að beini.

Fréttir af þessu máli

„Hættið að verja þennan ósóma“ – Vísir.is

Sigríður Á. Andersen brýtur mannréttindi, alþjóðalög og útlendingalög á flóttamönnum

Dómsmálaráðherra, Sigríður Á. Andersen er núna kerfisbundin farið að brjóta mannréttindi, alþjóðalög og útlendingalög á flóttamönnum sem koma til Íslands. Af þeim sökum á Sigríður Á. Andersen að segja af sér embætti án tafar. Þetta er auðvitað ekkert annað en ný-nasista háttur sem er viðhafður af Sigríði Á. Andersen og þeim reglum sem hún er að smygla í gengum kerfið í formi reglugerða sem eru ekki löglegar og hafa aldrei verið löglegar þar sem þær eru andstæðar íslenskum lögum og þeim alþjóðasáttmálum sem íslendingar hafa skrifað undir.

Þetta er hegðun hjá stjórnmálamanni og ráðherra sem á ekki að líðast og er ekkert nema skilyrðislaus brottrekstrarsök af Alþingi og úr ríkisstjórn. Það er ekkert annað í boði í þessu tilfelli. Það þarf einnig lögreglurannsókn á embættisverkum Sigríðar Á. Andersen þar sem hérna er augljóslega verið að brjóta íslensk lög og alþjóðlega sáttmála sem Ísland hefur samþykkt eins og ég nefni fyrr í þessari grein.

Vinstri Grænir eru einnig samsekir í þessu lögbroti. Það á að vísa þeim öllum eins og þingflokki sjálfstæðisflokksins og framsóknarflokksins af Alþingi vegna þessa máls og fleiri mála sem hafa verið að koma upp undanfarið.

Fréttir af þessu máli

Sigríður þrengdi að réttindum hælisleitenda sama dag og hún fékk stuðning frá þingmönnum Vinstri grænna (Stundin.is)

Grein uppfærð klukkan 13:44. Leiðrétting á nafni dómsmálaráðherra.

Framsóknarflokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn og Heimssýn eru á móti Orkustofnun Evrópusambandsins

Evrópusambandið [opinber vefsíða er hérna] hefur stofnun sem á samræma og vinna með aðildarríkjum um orkustefnu viðkomandi ríkis. Bæði Framsóknarflokkurinn og Heimssýn eru á móti þessari stofnun vegna þess að hvorki Heimssýn eða Framsóknarflokkurinn skilja hvað er um að ræða hérna.

Þessari stofnun sem kallast Agency for the Cooperation of Energy Regulators (ACER) [sjá einnig hérna] er einnig ætla að passa upp á það að lögum og reglum á fylgt á raforkumarkaðinum. Það er alveg ljóst að hvorki Framsóknarflokkurinn eða Heimssýn vilja slíkt eftirlit og mig grunar að þetta nái einnig til Sjálfstæðisflokksins og Vinstri Grænna.

Sú fullyrðing sem Heimssýn og Framsóknarflokkurinn setja fram í grein hérna um að þetta sé að ræða stjórnun Evrópusambandsins á raforkumálum íslendinga er lygi frá upphafi til enda. Það er hinsvegar ekkert nýtt að bæði Heimssýn og Framsóknarflokkurinn vilji gefa svindlurum frjálsan aðgang að markaðinum þar sem þeir geta okrað á fólki án þess að nokkurt yfirvald geri við það athugasemdir. Þessu er síðan slegið í áróður þar sem bullað er um fullveldi og það verði að hafa stjórnunina á Íslandi. Staðreyndin er reyndar sú að stjórnun íslendinga orkumálum fer aldrei neitt en Orkustofnun Evrópusambandsins mun koma í veg fyrir svindl á íslenskum orkumarkaði og að lög séu brotin.

Íslendingar hafa síðan ekkert val í því að taka upp þessi lög frá Evrópusambandinu. Þetta er hluti af EES samningum og ef íslendingar vilja ekki fella EES samninginn úr gildi þá verður að taka þessi lög upp í íslenskan lagarétt. Það eru engar undantekningar í boði.

Uppfært þann 19-Mars-2018 klukkan 00:51.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur bæst við þá stjórnmálaflokka sem eru á móti Orkumálastofnun Evrópusambandsins án þess þó að hafa nokkra hugmynd um hvað málið snýst eða hvað það varðar. Þessu hafa heimskingjarnir hjá Heimssýn fagnað í nýrri grein sem var birt í kvöld. Það er ekkert hægt að rökræða við þetta fólk þar sem það er bæði heimskt, hrokafullt og neitar að skilja um hvað málið snýst. Þetta hinsvegar breytir ekki neinu um þá staðreynd að íslendingar verða að taka þetta upp í landslög Íslands vegna EES samningins.

Evran er bara fyrir moldríka vini Sjálfstæðisflokksins á Íslandi

Það er alveg ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn lítur svo á að evran og Evrópusambandið sé eingöngu fyrir hina ríku vini Sjálfstæðisflokksins og þar er helst að nefna Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) og síðan aðra sem eru ríkir og eru vinir valdamanna í Sjálfstæðisflokknum. Með því að halda evrunni og aðild Íslands að Evrópusambandinu frá almenningi á getur Sjálfstæðisflokkurinn haldið um alla þræði spillingarinnar sem er núna ríkjandi á Íslandi. Þannig er einnig hægt að spila með gengi krónunnar, kaupa evrur þegar gengið er hagstætt og selja þegar gengið versnar eins og gerist reglulega á Íslandi vegna lélegar efnahagstjórnar af hálfu vanhæfra ráðamanna úr röðum Sjálfstæðisflokksins.

Það væri besta og öflugasta efnahaglegasta stefna fyrir íslendinga að ganga í Evrópusambandið og taka upp evruna sem gjaldmiðil. Fyrir utan þá kosti þá yrði vegakerfið á Íslandi uppfært í upp í þá staðla sem Evrópusambandið hefur varðandi vegakerfi aðildarríkja sinna. Almenningur mundi stórgræða á aðild Íslands að Evrópusambandinu. Að auki yrðu verðtryggð húsnæðislán úr sögunni með upptöku evrunar á Íslandi.

Þegar formenn Sjálfstæðisflokksins tala um að hafa stjórnina á Íslandi þá eru þeir um að tala stjórn Sjálfstæðisflokksins yfir Íslandi á sama hátt og glæpasamtök stjórna hagsmunum sínum. Stjórnmálaflokkar og glæpasamtök eru ekki alltaf óaðskilin fyrirbæri.

Bændasamtök Íslands eru gjörspillt og handónýt samtök

Það er að sjá á lestri nýjasta Bændablaðsins að Bændasamtök Íslands ætla sér að fara í áróðursherferð gegn innflutningi á kjöti, mjólk og eggjum til Íslands. Þar sem Bændasamtök Íslands eru eingöngu borguð með skattpenginum íslenskra skattgreiðanda þá er ljóst að íslenskir skattgreiðendur munu borga fyrir þennan lyga-áróður sem Bændasamtök Íslands ætla sér að fara að dreifa til íslendinga.

Bændasamtök Íslands eru gjörspillt samtök sem þjóna ekki hagsmunum íslenskra bænda að neinu leiti. Þetta er klúbbur örfárra ríkra einstaklinga sem hafa náð þar völdum og fara með alla bændur eins og leiguliða á 19 öldinni.

Það á að leggja niður alla tolla á innflutning á matvöru. Enda kosta íslenskir matvælatollar íslenskan almenning milljarða króna árlega og þessi verndarstefna kostar íslenska bændur ennþá hærri upphæðir. Ólíkt því sem lygin segir frá Bændasamtökum Íslands þá er matvælaframleiðsla á Íslandi sáralítil og mun aldrei framleiða nóg ofan í alla þá ferðmenn sem munu koma til Íslands árið 2018 en sú talað er áætluð 2,8 milljónir manna. Íslenskir bændur rétt svo framleiða ofan í 348.000 manns eins og staðan er í dag og í sumri framleiðslu er ekki framleitt nóg. Helst er skortur í svínakjöti, kjúklingi og nautakjöti. Það er alveg ljóst að lambakjöt verður seint flutt til Íslands enda er lítið framleitt af lambakjöti í ríkjum á meginlandi Evrópu.

Bændasamtök Íslands í núverandi mynd á að leggja niður. Íslenska ríkið á að taka þennan málaflokk af þessum sérhagsmunastamtökum enda er núverandi fyrirkomulag þannig að það getur eingöngu boðið upp á spillingu og sóun almannafjár. Skýrsla Ríkisendurskoðunar frá árinu 2011 um þetta mál er að finna hérna. Það á einnig að afnema lög 130/1994 um Bændasamtök Íslands. Þetta geta verið frjáls félagsamtök og það krefst ekki sérstakrar lagasetningar af hálfu Alþingis.

Þess má einnig geta (víst að þessi auglýsing er í Bændablaðinu). Þá er ekki gott að gefa kanínum gulrætur þar sem slíkt veldur þeim tannskemmdum og er vont fæði fyrir þær. Fái kanínur að velja þá borða þær græna sem er á gulrótum fyrst og hafi þær ekkert annað þá borða þær sjálfa gulrótina. Best er að gefa kanínum grænfóður (gras, kál og annað slíkt) og sleppa gulrótum algerlega.

Bændasamtökin ljúga kerfisbundið um hættuna af innflutning á matvælum

Bændasamtök Íslands ljúga kerfisbundið um stöðu mála á Íslandi. Staðreyndin er sú að Ísland er með sömu matvælalög og gilda annarstaðar í Evrópusambandinu og á Evrópska Efnahagssvæðinu. Líkunar á því að smitað kjöt berist til Íslands eru engar, enda lifa umræddar bakteríur og veirur ekki í dauðum vef. Þessar sýkingar þurfa lifandi dýr til þess að geta smitað áfram og það er ennfremur engar líkur því að beljur eða svín komist í tæri við kjöt af slátruðum beljum eða svínum í útihúsum þar sem þau eru hýst.

Það yrði enginn innflutningur á lambakjöti til Íslands. Vegna þess að á meginlandi Evrópu er svo til ekkert framleitt af lambakjöti til útflutnings og það sem er framleitt fer allt á innanlandsmarkað í viðkomandi ríkjum eða til nágrannaríkjanna. Ógerilsneydda mjólk þarf að gerilsneyða áður en hægt er að vinna úr henni vöru eins og osta og aðrar mjólkurvörur. Sýkingarhætta þar er því engin.

Það eru afskaplega lítil hætta á smiti í fuglum vegna eggja, þar sem farfuglar koma til Íslands árlega og það sem þrífst í þeim (sjúkdómar) getur einnig þrifist í hænsnum ef hænunnar komast nærri veikum fugli.

Bændasamtökin geta ekki fengið dómi EFTA breytt og Evrópusambandið mun ekki samþykkja neinar undanþágur fyrir íslendinga. Enda hefur Evrópusambandið sína eigin sérfræðinga sem eru margfalt betri og óháðari en spillingaröflin sem er að finna innan Bændasamtaka Íslands. Það á að svipta Bændasamtök Íslands öllu fjármálavaldi sem samtökin hafa yfir íslenskum bændum enda er hérna um að ræða alvarlega hagsmunarárekstra sem ekki er hægt að sætta sig við. Síðan á að afnema með öllu þá einokun sem er á sölu mjólkurvara á Íslandi og er varin með lögum. Mjólkursamsalan getur verið á frjálsum markaði eins og önnur fyrirtæki á Íslandi. Það er ekki réttlætanlegt að þetta fyrirtæki sé varið með lögum sem eru hugsanlega brot á stjórnarskrá en örugglega brot á Samningum um Evrópskt Efnahagsvæði.

Frétt Rúv

Óttast áhrif hráakjötsdóms og tollasamnings

Hið hættulega og öfgafulla íhald og afturhald í Vinstri Grænum

Ögmundur Jónasson [Wikipedia grein hérna] er einn af áhrifamönnum í Vinstri Grænum. Vegna hans eru Vinstri Grænir öfgafullur vinstri íhaldsflokkur sem er með efnahags og alþjóðastefnu sem er hættuleg íslenska ríkinu. Þetta þýðir einnig að Vinstri Grænir eru ekkert betri heldur sjálfstæðisflokkurinn, framsóknarflokkurinn og miðflokkurinn hvað þetta varðar.

Hugmyndafræði Ögmundar og fleiri sem eru á nákvæmlega sömu skoðun og hann er mjög einföld. Það á að einangra Ísland með öllum tiltækum ráðum. Vinsæl aðferð hjá þessum fávitum er að vitna alltaf til hina „vondu“ reglugerða og laga sem koma frá Evrópusambandinu (ESB) í gegnum Evrópska Efnahagssvæðið (EES). Það er talað um að Evrópusambandið og lög þess séu alltaf til vandræða og vond. Evrópusambandið er eingöngu vont ef að þú ert gjörspilltur stjórnmálamaður og ofan á það gjörsamlega vanhæfur einstaklingur til þess að vera í stjórnmálum almennt. Þökk sé Evrópusambandinu þá njóta íslendingar meira frelsis í dag en nokkurntímann eftir stofnun íslenska ríkisins (1918) og eftir að sjálfstæði fékkst frá Konungsríkinu Danmörku árið 1945. Árin sem Ísland var utan EFTA og EES voru þau ár þegar íslendingar þurftu að sæta gífurlegum takmörkunum á frelsi, hvort sem um var að ræða frelsi til þess að flytja inn vörur eða ferðast um Evrópu ásamt réttinum til þess að búa og starfa í Evrópu án þess að þurfa að sæta vegabréfatakmörkunum.

Ögmundur Jónasson kvart mikið undan áhrifaleysi gagnvart Evrópusambandinu (eins gera fleiri andstæðingar Evrópusambandsins). Ástæðan fyrir þessu er auðvitað sú að Ísland er ekki aðili að Evrópusambandinu. Ísland fær eingöngu aðgang að innri markaði Evrópusambandsins ásamt ferðafrelsi í gegnum tvíhliðasamninginn sem Evrópska Efnahagssvæðið er. Einhverjar athugasemdir geta EES ríkin gert í upphafi lagasetningarferlinu hjá Evrópusambandinu en það er mjög takmarkað ferli og ekki víst að þær athugasemdir lifi allt lagasetningaferlið hjá Evrópusambandinu vegna þess að Ísland á ekki neina fulltrúa sem koma að því ferli.

Önnur vinsæl þvæla hjá andstæðingum Evrópusambandsins er að halda því fram að landbúnaðarvara sem seld er innan Evrópusambandsins sé sýkt og samkvæmt nýjustu grein frá Ögmundi (sem er ástæðan fyrir þessum skrifum mínum) þá heldur Ögmundur fram þessum lygum í nýlegri grein í Morgunblaðinu (sem var víst birt í dag 26-Febrúar-2018). Þetta er allt saman haugalygi í Ögmundi og fleiri ESB andstæðingum um stöðu landbúnaðarvara innan ESB. Allur lagabálki Íslands um heilbrigði matvæla á Íslandi er kominn frá ESB. Ef íslendingar hefðu ekki tekið þau lög upp í íslenskum lagarétti þá hefði Evrópusambandið einfaldlega bannað innflutning á matvöru frá Ísland til Evrópusambandsins (fiskur, kjöt osfrv).

Það er alveg ljóst að Ögmundur Jónasson er öfgafullur íhaldsmaður þegar öfgafyllsta fólkið í sjálfstæðisflokknum tekur undir það sem Ögmundur Jónasson skrifar. Það þarf að verja Ísland gegn öfgafullum einstaklingum eins og Ögmundi Jónassyni. Menn og konur eins og Ögmundur Jónasson koma í veg fyrir framfarir og skerða réttindi almennings á Íslandi, fyrir utan alla þá spillingu sem þrífst í skjóli svona fólks og hugsunarháttar.

Kerfisbundið útlendingahatur hjá Dómsmálaráðherra [Sigríði H. Andersen], Útlendingastofnun

Það er lýsandi fyrir það hvernig komið er fram við fólk sem á ekki neitt á Íslandi að flóttamenn eru þar neðstir. Dómsmálaráðherra er harður útlendingahatri og hefur samkvæmt því sem sagt er skrifað greinar gegn útlendingum og flóttamönnum á vefsíðu sem er nú búið að leggja niður og hét AMX (öfgafullur hópur kristinna og hægri fasista í sjálfstæðisflokknum). Í dag er AMX ekki lengur til og allt þar efni sem var inni hefur verið þurrkað út (þetta gerðist um leið og þetta komst til valda á Íslandi). Þar að leiðandi finn ég ekki greinar frá Sigríði H. Andersen þar sem hún skrifar um útlendingahatur.

Hinsvegar hafa verk Sigríðar H. Andersen talað undanfarið og þau verk eru til skammar. Enda er það svo að íslendingar í dag þverbrjóta alla mannréttindasáttmála og reglur innan Evrópu með þeirri meðferð sem flóttamenn sem koma á eigin vegum til Íslands sæta. Fyrir þetta eitt ætti dómsmálaráðherra að sæta lögreglurannsókn og jafnvel dæmast til langrar fangelsisvistar. Það besta sem er hinsvegar hægt að gera að að krefjast þess að ríkisstjórn Íslands segi af sér án tafar og skilyrðislaust vegna lögbrota dómsmálaráðherra. Annars á Katrín Jakobsdóttir núvernandi forsætisráðherra að reka dómsmálaráðherra með skömm og skít. Enda verður ekki unað við núverandi ástand í dómsmálum íslendinga (og er staða flóttamanna þar bara eitt mál).

Það þarf að endurskipa alla yfirstjórn Útlendingastofnunar. Enda hefur safnast þar saman fólk sem er óhæft til þess að vera þar við völd og rekstur þeirrar stofnunar. Enda sýnir hegðun þess að það er á móti flóttamönnum og hvernig málum þar er háttað þá er mikil andstaða við útlendinga almennt innan þeirrar stofnunar. Slíkt á ekki að líðast enda er hérna um að ræða kerfisbundinn rasisma hjá íslenska ríkinu.

Ef Vinstri Grænir gera ekki neitt í þessu. Þá er ljóst að flokkurinn er alveg jafn gjörspilltur og framsóknarflokkurinn og sjálfstæðisflokkurinn. Íslendingar hafa ekkert við slíka stjórnmálaflokka að gera í dag. Framtíðin krefst þess að betur sé staðið að málum heldur en er gert núna í dag.

Af spilltum fábjánum í sjálfstæðisflokknum

Það er alveg ljóst að Brynjar Níelsson, þingmaður sjálfstæðisflokksins er gjörspilltur fábjáni með greindarvísitölu sem er umtalsvert lægri en skóstærðin sem hann notar. Brynjar fer helst fram í að verja spillingu, frændhygli og aðrar heimskulegar og gjörspilltar ákvarðanir sem sjálfstæðismenn koma fram með, hvort sem þær eru á vettvangi Alþingis eða í sveitarstjórnarmálum.

Við Brynjar Níelsson verður ekki unað og því á hann að segja af sér embætti þingmanns. Ef hann er heppin þá getur hann kannski fengið vinnu í Reykjavík sem götusópari en það er ekki víst að hann sé hæfur í það starf sem krefst umtalsverðrar færni í notkun kústa og verkskipulags.

Það skal tekið fram að ég er ekki í Pírötum eða neinum stjórnmálaflokki á Íslandi um þessar mundir.

Frétt Vísir.is

Segir Pírata viðkvæmari en aðra: „Svona menn eiga bara að vinna á vernduðum vinnustað“

Umræða um spillingu er ekki einelti

Það er rangt hjá Ásmundi Friðrikssyni að þetta sé einelti sem um er að ræða þegar umræða er um spillinguna sem hann er að stunda núna. Hérna er á ferðinni eðlileg umræða um þá spillingu sem Ásmundur hefur gerst sekur um og hefur komist upp með í talsverðan tíma. Það eina rétta í stöðunni er að Ásmundur segi af sér embætti sem þingmaður hið snarasta og síðan verði þessi spilling rannsökuð ofan í kjölinn af óháðum aðila (ekki Alþingi) og dómsmál höfðað ef þarf (sem þarf mjög líklega).

Það er alveg ljóst að Ásmundur Friðriksson keyrði ekki 47.444 km á ári. Það er meira en allt ummál jarðarinnar við miðbaug. Það er einfaldlega ekki nægur tími í sólarhringum eða mánuðinum til þess að fara í alla þessa keyrslu eins og Ásmundur Friðriksson heldur fram. Þetta er einföld stærðfræði og í tilfelli Ásmundar Friðrikssonar þá gengur hún einfaldlega ekki upp.

Fréttir af þessu máli

Ásmundur sá sem keyrði fyrir 385 þúsund krónur á mánuði (Kjarninn.is)
Tel­ur frétta­flutn­ing jaðra við einelti (mbl.is)