One Reply to “Jarðskjálfti í Grikklandi”

  1. Já, þetta var ágætisskjálft hérna (er í Kissamos Kastelli – NV-strönd Krítar); húsið hristist allsvakalega (þriggja hæða hús) og ljósakrónan sveiflaðist kröftuglega. Nágrannarnir fóru undir eldhúsborðið og voru þar, þar sem ólétta nágrannakonan róaði sig niður með því að telja upphátt.
    Aðrir nágrannar forðuðu bílunum sínum þar sem þeir höfðu parkerað þeim undir húsunum, og höfðust svo við í þeim fyrst á eftir.
    Þetta var greinilega sterkari skjálfti en á Íslandi fyrir nokkrum árum.

Lokað er fyrir athugasemdir.