Brandari í boði AMX

Það er eitthvað til af brandaraköllum á Íslandi. Nokkrir af þeim nafnlausu skítaskrifurum á vefnum AMX virðast vera brandarakallar.

Í einni af drullufréttinni hjá þeim er þessa hérna fullyrðingu að finna.

Smáfuglarnir sakna þess tíma þegar fjölmiðlar tóku sig alvarlega, sögðu fréttir og kröfðust svara af ráðamönnum. Sú var tíðin.

Tekið héðan.

Þetta er merkileg fullyrðing, og fyndin. Sérstaklega í ljósi þess að æðsti maður þessa manna, Davíð Oddsson svaraði aldrei alvarlegum spurningum nema með skætingi og útúrsnúningum. Ef að hann þá svaraði gagnrýninni spurningu almennt, sem var alls ekkert alltaf raunin. Það er því fyndið, en jafnframt sorglegt að sjá þessa fullyrðingu hjá AMX. Sérstaklega í ljósi þess að hún er ósönn eins og svo margt sem frá þeim kemur.