Rökþrota ESB andstæðinga á Íslandi

Það er orðið augljóst að andstæðingar ESB á Íslandi eru rökþrota, og vel það. Hérna er gott dæmi um algert rökþrot ESB andstæðings.

Það er ekki bara þessi staki andstæðingur ESB á Íslandi sem er rökþrota. Heldur ætla ég mér að leyfa að fullyrða að allir andstæðingar ESB á Íslandi séu rökþrota. Ástæðan er mjög einföld fyrir þessari fullyrðingu minni. Þeir geta ekki komið með neinar sannanir fyrir málflutningi sínum, ekkert sem þeir segja stenst nánari skoðun. Þeir ennfremur saka alla þá sem gagnrýna þeirra málflutningi um að fara með rangt mál, þó án þess að færa sönnur á það. Þeir blekkja og ljúga að almenningi. Þeir ljúga að almenningi um aðildarviðræðurnar við ESB, halda fram þar hlutum sem standast ekki nánari skoðun og eru ekki í neinu samræmi við raunveruleikann.

Ég nákvæmlega enga trú á því að almenningur á Íslandi vilji láta ljúga að sér eins og Heimssýn, Ísafold og aðrir andstæðingar ESB á Íslandi gera (LÍÚ, Bændasamtökin, sjálfstæðisflokkurinn (Davíð Oddsson, Morgunblaðið)). Enda meðhöndla andstæðingar ESB á Íslandi almenning á Íslandi eins og smábörn, en ekki eins og fullorðið fólk. Í þessu felst auðvitað hið fullkomna virðingarleysi gagnvart almenningi á Íslandi og skoðunum hans.

Á þeim grundvelli og með þeim rökum þá hvet ég almenning á Íslandi að snúa baki við andstæðingum ESB á Íslandi. Þar sem ekkert gott hefur komið frá þeim, og ekkert gott mun koma frá þeim. Stefna þeirra á Íslandi (stefna andstæðinga ESB á Íslandi hefur verið ráðandi síðustu áratugina) hefur þýtt þjóðargjaldþrot, niðurlægingu íslensku þjóðarinnar á erlendum vettvangi, hrun gjaldmiðilsins og gjaldþrot fyrirtækja og heimila á Íslandi. Það er þetta sem andstæðingar ESB á Íslandi standa fyrir og hafa alltaf staðið fyrir að mínu áliti.