Alvöru jafnrétti

Á vísir.is er að finna frétt um alvöru jafnrétti. En þetta jafnrétti er að finna í Svíþjóð. Reikna má reyndar með að íslenskir (öfga)feminstar séu mótfallnir þessari gerð af jafnrétti, enda virðast íslenskir (öfga)feminstar hafa meiri áhuga á því að skipa konum fyrir í klæðaburði (sem og öðru) en að leyfa þeim að ráða sjálfum hvað konur gera við sig og sitt.

Topplaus uppreisn í Svíþjóð

Ungar konur í Svíþjóð hafa gert uppreisn gegn því að fá ekki að fara topplausar í almenningssundlaugar. Þetta byrjaði 5. september síðasliðinn í sundlaug í Uppsölum.

Tvær systur, Ragnhildur og Kristín Karlsson fóru berbrjósta í laugina. Laugarvörður var fljótur að kalla þær að bakkanum og sagði þeim að annaðhvort yrðu þær að klæða sig í að ofan, eða fara úr lauginni.

„Er hægt að kalla þetta eitthvað annað en kynjamismunun?“ spurði Ragnhildur á bloggsíðu sinni.

Hálfum mánuði síðar fengu systurnar birt lesendabréf í dagblaðinu Dagens Nyheter, þar sem þær kvörtuðu. Í kjölfarið var viðkomandi sundlaug kærð til jafnréttisráðs Svíþjóðar. Þar er málið nú til meðferðar.

En meðan það er að velkjast í kerfinu hefur uppreisn systranna breiðst út. Til urðu samtökin Ber brjóst, og félagar í þeim hafa margsinnis farið topplausar í sundlaugar í Malmö og Lundi.

Tvær kvennanna segja í blaðaviðtali að fyrir þeim vaki að koma af stað umræðu um þær óskráðu félagslegu og menningarlegu reglur sem kyngeri og mismuni líkama kvenna.

„Við viljum að brjóst okkar verði jafn sjálfsögð og kynlaus og brjóst karlmanna, svo við getum líka farið úr að ofan á fótboltaleikjum,“ segja þær.

Vísir.is