AMX er málspípa spillingar og valdagræðgi

AMX vefurinn er vefur þeirra sjálfstæðismanna sem tala fyrir spillingu og valdagræðgi á Íslandi. Þessi vefur hefur eingöngu þann tilgang að vernda Davíð Oddsson og glæpaverk hans í fortíð og nútíð. Berjast gegn viðskiptafrelsi á Íslandi með því að tala á móti aðildarviðræðum Íslands og ESB.

Enda er það staðreynd að AMX er rekið af ný-frjálshyggju fólki sem átti sinn þátt í að leggja efnahag Íslands í rúst eftir arðrán um nokkura ára tímabil. Þetta sama fólk er núna að reyna koma sér í þá stöðu að það geti haldið áfram að stunda arðrán á íslenskum efnahag.

AMX er vefurinn sem talar fyrir spillingu, valdagræðgi og er undir styrkri ritstjórn Hannesar Hólmsteins. Enda falla niður skrif á AMX alltaf þegar Hannes Hólmsteinn fer í frí til útlanda. Það er heppilegt að fáir leggja trúnað á það sem kemur frá AMX. Nema sanntrúaðir ný-frjálshyggjumenn á Íslandi og blindir aðdáendur Davíðs Oddssonar.