Auglýsingar aftur á bloggið

Ég hef sett auglýsingar aftur á bloggið. Eftir að mér var bent á að slíkt væri gott ef ég fengi mikla umferð inn á það ef eitthvað færi að gerast. Athugasemd um slíkt má sjá hérna. Ég sótti aftur um Google Adsense auglýsingar, en ég veit ekki hvort að það fer í gegn vegna einhverra nýrra reglna sem Google Adsense hefur tekið upp. Ef það er raunin. Þá mun ég eingöngu nota auglýsingar frá Amazon UK. Þar fæ ég ekki tekjur miðað við umferð. Heldur miðað við sölu af þeim vörum sem eru keyptar í gegnum auglýsingar hjá mér eða beinar vörutenginar sem ég vísa í.

Bloggfærslan hefur verið uppfærð klukkan 22:55 UTC þann 09.02.2013.