Það á að stoppa Rússalánið NÚNA!

Það er augljóst að það er verið að ljúga að Íslensku þjóðinni daginn út og inn. Fjölmiðlar landsins þegja bara og eru þægir, birta ekki óþægilegar fréttir af vöruskorti, ónýtum gjaldeyrisviðskiptum, sturluðum Seðlabankastjóra (sem einnig er vanhæfur), óhæfum og vanhæfum Forsætisráðherra sem ver umræddan Seðlabankastjóra.

Til þess að toppa skömmina, valdagræðinga og vitleysuna þá ætlar Davíð Oddsson að setja auðlindir Íslands sem veð fyrir Rússaláninu. Síðan var fólk að hafa áhyggjur af EB (ESB). Ég held að sumir ættu að ræsa þessa einu heilasellu sem þeir hafa eftir og hugsa aðeins um það hvað gerist ef að Rússar komast yfir Ísland eins og það leggur sig.

Það er kominn tími til þess að Samfylkingin slíti þessu stjórnarsamstarfi, enda er verið að draga flokkin á asnaeyrunum og blekkja þá útí eitt.

Frétt DV um auðlyndaafsalið.

Auðlindir Íslendinga lagðar undir