Merkilegur fundur

Þessi loftsteinn er merkilegur og mun færa vísindamönnum mikilvæga þekkingu á þróun og myndun sólkerfsins. En til þess að ná alla leið til jarðar hefur þessi loftsteinn verið sæmilega stór, líklega örlítið stærri en körfubolti.

Ekki kemur fram hvaða gerðar þessi loftsteinn er, en líklegt er að hann hafi verið kolefnisgerðar.

Tengist frétt: 4,5 milljarða ára gamall loftsteinn í Perú

Loftsteinn rekst hugsanlega á Mars í enda Janúar

Vísindamenn hafa fundið loftstein sem er hugsanlega á árekstarbraut við Mars. En samkvæmt útreikningum vísindamannana þá er möguleikinn á að loftsteinnin rekist á Mars 1 á móti 75 og telst það vera mjög miklar líkur, ef til árekstar kæmi þá mundi hann eiga sér stað þann 30 Janúar 2008. Sem stendur þá sjá vísindamenn ekki loftsteinin vegna þess að tungl jarðar skyggir á braut loftsteinsins til Mars.

Vísindamenn telja að þessi loftsteinn sé fær um að búa til Tunguska líkan atburð á yfirborði Mars.

Hérna er hægt að lesa betur um þetta.

Asteroid on track for possible Mars hit

Útjaðar sólkerfsins er með dæld

Samkvæmt Voyager 2 geimfarið þá er útjaðar sólkerfisins ekki hnöttóttur eins og áður var haldið. Heldur er útjaðar sólkerfisins með örlitla dæld sem virðist eiga upptök sín í sterkum segulsviðsáhrifum frá nálægum sólkerfum.

Nánar um þetta mál hérna. Þess má geta að Voyager 2 geimfarið virkar fullkomlega eftir rúmlega 30 ár síðan því var skotið á loft. Næsta geimfar sem er á leiðinni að þessum útjaðri er geimfarið New Horizion, en það fer framhjá plánetunni Plútó árið 2015 og mun þá rannsaka plánetuna. Eftir það liggur leið þess útúr sólkerfinu eins og Voyager geimfaranna.

Fornt salt set finnst á Mars

Samkvæmt Universetoday.com þá hafa vísindamenn fundið fornt salt set á Mars. En umrætt salt set fannst í gýg á Mars þegar vísindamenn voru að skoða nýlegar myndir sem teknar hafa verið á plánetunni. Þessi fundur þýðir að einhverntíman í fortíð Mars var að finna mikið af vatni, nægjanlegu til þess að mynda höf á plánetunni.

Hérna er fréttin af fundinum.

Ancient Salt Deposits in a Martian Crater

Hlustað á alheimin

Vísindamenn hafa komið upp með nýja aðferð til þess að leita að siðmenningum í geimnum. Ólíkt því sem SETI er að gera, þá er leitað á mun lægri tíðnum. En þá er um að ræða tíðnum sem ná frá 80 – 300 Mhz. En það er ekki verið að leita að merkjum sem viljandi eru send út, heldur er verið að leita að merkjum sem leka út, eins og útvarps og sjónvarps sendingum, eða öðrum tegundum af fjarskiptum. Meira um þetta hérna.

Andromeda vetrarbrautin stærri en talið var

Vetrarbrautinn Andromeda er stærri en það sem vísindamen hafa haldið hingað til. En nýjar rannsóknir benda til þess að Andromeda vetrarbrautin sé allt að fimm sinnum stærri en upphaflega var haldið. En Andromeda er svo stór að það liggur við að hún komist í snertingu við okkar vetarbraut. En Andromeda er stærsta vetarbrautin í staðbundna vetrarbrautarhópnum, sem inniheldur Vetarbrautina, Andromeda vetarbrautina og þrjátíu minni vetarbrautir. Andromedra vetarbrautin er 2.5 milljón ljósár frá okkar okkar vetarbraut. Hægt er að lesa meira um þessa uppgvötun á fréttavef BBC hérna.

Halastjarna sést frá Íslandi

Samkvæmt fréttum á Vísir.is þá sést halastjarnan McNaught frá Íslandi um þessar mundir. En þessi halastjarna mun fara mjög nálægt sólinni, aðeins 0.17 AU og enginn veit með vissu hvað gerist í kjölfarið. Hægt er að lesa fréttina um þetta hérna, einnig sem að hægt er að fá meiri upplýsingar um gang mála varðandi þessa halastjörnu hérna. Einnig sem þarna er að finna fleiri myndir af halastjörnunni.

Ísgos á Enceladus

Eitt tungl Satúrnusar sem heitir Enceladus er ísiþakið tungl. En það er meira í gangi á þessu tungli en virðist við fyrstu sýn. Samkvæmt myndum frá gervitunglinu Cassini þá eiga sér stað ísgos á þessu tungli. En ísgos verða þegar bráðið vatn sleppur upp í gegnum þykka ísskelina sem er á tunglinu. Þessi ísgos virðast endurnýja E hring Satúrnusar samkvæmt vísindamönnum hjá Nasa.

Hægt er að lesa alla fréttina frá Universe Today hérna

Stormur á Mars sýnilegur frá Jörðinni

Ef að þú ert með sæmilega góðan stjörnusjónauka þá er möguleiki fyrir þig að sjá rykstorm sem geisar núna á plánetunni Mars. En vegna þess að Mars er núna óvenju nálægt Jörðinni þá eru skilyrðin til þess að sjá plánetuna einstaklega góð um þessar mundir. En Mars mun ekki vera svona nálægt Jörðinni aftur fyrr en árið 2018 samkvæmt vísindamönnum.

Hægt er að lesa alla fréttina um þetta á Space.com