Að skrifa um mjólkurfernur

Að skrifa um mjólkurfernur getur verið vafasamt mál, ef eitthvað er að marka viðbrögðin sem ég fékk við síðustu bloggfærslunni á minnsirkus.is, en ég setti síðustu færslu einnig þar inn. Það má sjá viðbrögðin við þeirri bloggfærlsu hérna. Ég held að sumir hafi hellt alltof oft úr svona mjólkurfernu, það er allavega eitthvað ekki í lagi ef maður má ekki benda á lélega hönnun á mjólkurfernum.