Bótakerfi dauðans

Eins og þessi frétt ber með sér, þá eiga öryrkjar ekki að hafa neinar aðrar tekjur en þær sem koma frá Trygginastofnun. Allt annað er skorið af þeim og helst dæminu snúið þannig að viðkomandi þurfi að borga með sjálfum sér til Tryggingastofunar.

Ef það er eitthvað sem núverandi örorkukerfi gerir er að koma í veg fyrir atvinnuþáttöku öryrkja og einangra þá félagslega. Ég sem öryrki legg ekki í það að vinna, ég gæti nefnilega endað að tapa meiru en að græða á vinnunni. Ég ætla einnig að benda á þá staðreynd að ef að öryrki vinnur í lóttó,veri það Víkingalottó eða bara hið Íslenska lottó þá telst það sem tekjur og þá verða bætur viðkomandi skertar krónu fyrir krónu í hlutfalli við vinningin, en hlutfallið er 1:1 í þessu tilfelli og væntanlega örlítið meira þegar skattar teljast inní þetta.

Mér telst til að það sé ömurlegt að vera öryrki og aldraður einstaklingur á Íslandi í dag. Ég mæli með að við tekjutengjum tekjur alþingsmanna og ráðherra á sama hátt og tekjur öryrkja og aldraðara eru tekjutengdar í dag. Ég er alveg vissum að þeir yrðu ánægðir með það, eftir allt saman, þeir fundu þetta kerfi upp.

Tengist frétt: Stórtapaði á að þiggja bætur eftir slys

2 Replies to “Bótakerfi dauðans”

  1. Endemis della er þetta í þér með bætur og Lottó vinninga. Það sem ekki er skattskylt kemur Tryggingastofnun ekki við og hefur því ekki áhrif á bætur lífeyristrygginga.

  2. Lottó vinningar eru kannski ekki skattskildir, en þeir eru taldir sem tekjur engu að síður, og sem slíkir þá skerða þeir bætunar. Ofan á þetta þá skerða einnig vaxtagreiðslur bætunar hjá fólki, í dag er þessi skerðing 100%. Ég er öryrki og það er því nauðsynlegt fyrir með þekkja þetta kerfi og vita hvað er gerast í því.

Lokað er fyrir athugasemdir.