Davíðs-armur sjálfstæðisflokksins fagnar mótmælunum

Sá armur sem er kenndur við Davíð Oddsson í sjálfstæðisflokknum fangar núna ákaft mótmælunum fyrir framan Alþingi Íslendinga. Ástæðan er mjög einföld. Þetta fólk vonast nú til þess að komast aftur til valda á Íslandi og haldið áfram að fela spillinguna og vanhæfnina. Einnig sem að þetta fólk mundi fá tækifæri til þess að stoppa ESB umsókn Íslands í langan tíma.

Það er hinsvegar alveg augljóst að innan sjálfstæðisflokksins þá er mikið talað, en ekkert framkvæmt þegar það kemur að þeim vandamálum íslendinga. Enda hefur það sýnist sig, og sannast að það er enginn áhugi fyrir því innan sjálfstæðisflokksins að leysa þau vandamál sem hafa komið upp á Íslandi í kjölfarið á óstjórn sjálfstæðisflokksins síðustu 18 ár eða svo.

Hérna (evrópuvaktin, sjálfstæðisflokkurinn) er gott dæmi um fagnarlæti ný-frjálshyggjumannana í sjálfstæðisflokknum vegna þeirra mótmæla sem eiga sér stað núna á Íslandi. Hérna (AMX) er síðan gott dæmi um það hversu langt þetta fólk er tilbúið til þess að ganga í að ljúga að íslendingum og afneita sínum eigin verkum og afleiðingum verka sinna.

Það liggur alveg ljóst fyrir að sjálfstæðisflokkurinn á ekkert erindi inn í ríkisstjórn Íslands. Það sama gildir um framsóknarflokkinn, en sá flokkur á ekkert erindi heldur í ríkisstjórn Íslands. Enda er spilling þar ennþá mikið vandamál og vanhæfni núverandi formanns framsóknarflokksins er augljós langar leiðir.

Kjaftæði í Katrínu Önnu öfga-feminista

Öfgafemininstar á Íslandi virðast ætla seint að gefast upp á því að boða út lygar og rangfærslur um klám, klám efni og notkun þess hjá almenningi. Núna í dag kemur Katrín Anna öfga-feministi með nýtt sett af rangfræslum og staðhæfingum um klám sem hvorki standast nánari skoðun eða vísindalegar rannsóknar aðferðir.

„Klámvæðing er heiti á því menningarferli þegar klám og hlutverk, myndmál, táknmyndir og orðfæri úr kláminu smeygja sér inn í okkar daglega líf sem normaliserað, samþykkt og jafnvel dáð menningarlegt fyrirbæri.“

Klámvæðing er ekki til. Hinsvegar varð umræðan og sýnileiki kynferðis og kynferðislegra atburða mun sýnilegra í kjölfarið á kynlífsbyltingunni á sjötta og sjöunda áratug tuttugustu aldarinnar. Afleiðinganar af þeirri byltingu sjáum við í dag. Þau viðhorf sem Katrín Anna og fólk sem aðhyllist hennar skoðun til kynlífs og kynferðis er af mjög íhaldssömum og öfgafullum toga. Þar sem allt gengur útá að gera kynlíf óhreint, ósiðlegt og hreint og beint banna það út úr allri almennri umræðu. Kynlíf er hluti af reynslu flest allra í þjóðfélaginu. Það er því fullkomnlega eðlilegt að þetta hafi mikla vigt í umræðunni á hverjum tíma fyrir sig.

Katrín Anna tók dæmi af umfjöllun fjölmiðla um alþjóðlegu klámráðstefnuna sem halda átti á Hótel Sögu árið 2007 og vakti gríðarleg viðbrögð. „Þá var jafnvel gengið svo langt, í að minnsta kosti einum fjölmiðli, að segja að um væri að ræða skemmtiferð fólks en ekki ráðstefnu – þrátt fyrir að skýrt kæmi fram á heimasíðu hópsins að þetta væri business-to-business tengslanetsferð. Jákvæð umfjöllun fjölmiðla er athyglisverð í ljósi þess að margar skilgreiningar á klámi vísa til þess að það byggi á niðurlægingu, og þá sérstaklega kvenna. Í tilfelli umræddrar klámstefnu þá var efnið sem henni tengdist það ofbeldisfyllsta sem ég hef séð,“ segir Katrín Anna.

Þetta var funda og skemmtiferð hjá þessu fólki. Þessi fullyrðing sem þú setur hérna fram er ekkert nema lygi og ósvífin tilraun til þess að blekkja almenning og umræðuna.

Til stóð að klámmynd yrði tekin hér á landi af þeim sem sóttu ráðstefnuna en hún var á endanum slegin af vegna mikillar gagnrýni, þar á meðal borgaryfirvalda sem lýstu sig andsnúin því að klámráðstefna væri haldin í Reykjavík.

Þessi skemmtiferð var slegin af vegna öfgafullra viðbragða fólks eins og Katrínar Önnu, Sólareyjar Tómasdóttur og fleiri öfgafulls fólks á Íslandi sem gat ekki hugsað sér fólk sem væri frjálslynt í kynlífsmálum væri á Íslandi að gera það sem því líkar best. Að stunda kynlíf, jafnvel þó svo að það sé fyrir framan myndavélar.

Samkvæmt íslenskum hegningalögum er ólöglegt að birta klám, búa það til og dreifa því. Viðurlögin eru sektargreiðslur eða fangelsisvist í allt að sex mánuði.

Þessi lög eru úrelt og ber að afnema. Íslendingar eiga að lögvæða klámið eins og danir gerðu á sínum tíma, og fleiri þjóðir í Evrópu hafa einnig gert hægt og rólega.

Katrín benti á að bandaríska sálfræðifélagið metur það svo að klámvæðing eigi eftir að leiða af sér aukna kvenfyrirlitningu, aukna eftirspurn eftir barnaklámi, aukna kynferðislega áreitni og aukið kynferðisofbeldi.

Þetta er staðreyndaleysa og tómt bull. Klám og barnaklám eiga ekkert sameiginlegt og þessi tilraun til þess að tengja þetta tvennt saman er ekkert nema tilraun til þess að blekkja og ljúga að fólki. Þetta er ennfremur ekkert nema ósvífin tilraun til þess að ljúga að fólki og fela fyrir þeim raunveruleikann. Klám er ekki hættulegt og gerir ekkert að því sem hérna er haldið fram. Eins og ég nefni hérna að ofan, þá er klám löglegt í Danmörku, Þýskalandi og fleiri löndum. Engu að síður hefur þessi raunveruleiki sem hérna er búinn til af öfgafeminstum á Íslandi ekki komið fram í þessum löndum. Ástæðan er mjög einföld. Þetta er nefnilega ekkert nema lygi í öfgafeminstum á Íslandi, eins og svo margt annað sem frá þeim kemur.

„Þetta ætti, hvert fyrir sig, að vera nóg fyrir fólk að staldra við og hugsa sig um tvisvar áður en það tekur klámvæðingunni fagnandi eða tekur þátt í henni. Afleiðingarnar eru skelfilegar fyrir börn og konur sem verða fyrir misréttinu. Afleiðingarnar eru ekki síður alvarlegar fyrir karlmenn – í raun þýðir það sem fram kom hér á undan að klámvæðingin geti búið til kynferðisbrotamenn. Það ætti að vera alvarlegt umhugsunarefni fyrir karla og í mínum huga er það stórt umhugsunarefni af hverju karlar setja sig ekki á móti klámvæðingunni í meira mæli en þeir gera. Ef til vill stafar það af því að hinar stjórnandi ímyndir klámvæðingarinnar hafa þegar haft þau áhrif að fólki finnst hlutverkin sem birtast í klámvæðingunni vera eðlilegur hluti hversdagslífsins – að svona eigi þetta að vera,“ segir Katrín Anna.

Hverjar verða afleiðinganar af því að kúga niður eðlilega kynkvöt fólks ? Hvort sem viðkomandi er karl eða kona. Það er ennfremur algerlega ósönnuð fullyrðing hjá öfga-feminstum að klám búi til kynferðisafbrotarmenn. Í raun þá geta öfga-femininstar ekki vísað í neina einustu rannsókn máli sínu til stuðnings.

Afleiðinganar eru ekki neinar fyrir börn. Þar sem þeim er bannaður aðgangur að þessu efni samkvæmt lögum og það er á ábyrgð foreldra að tryggja það að börn komist ekki í svona efni á meðan þau hafa ekki andlegan þroska til þess að skilja útá hvað kynlíf gengur. Það er ekkert misrétti fólgið í klámi og hefur aldrei verið. Reyndar er það þannig að hallar helst til mikið á karlmenn sem vinna í þessu, enda fá þeir illa borgað við framleiðslu klámmynda. Á meðan konur fá vel borgað þegar klámmynd er framleidd. Hvort að það er átak til þess að breyta þessu veit ég ekki.

Kynlíf er hluti af lífi allra. Það þýðir einnig að klám er það líka. Enda er klám ekkert annað en kynlíf á filmu.

Allar tilvitnanir eru úr frétt Vísir.is.

Klámvæðing hefur alvarlegar afleiðingar fyrir karlmenn

Lygileg barátta gegn klámi á Íslandi

Baráttan á Íslandi gegn klámi er lygileg. Eins og má sjá í fréttum Pressunar í dag og fyrir nokkru síðan. Enda hefur hópur háskólanema sem sér ekkert að því að ljúga uppá kynlífsbúðir í Reykjavík og saka þessar búðir um að selja barnaklám. Sem er auðvitað allstaðar ólöglegt og hvergi selt eins og umrædd ásökun gegnur útá. Við þessar lygaásakanir þá koma auðvitað fram svona fréttir á Pressunni sem gera útá tilfinngar fólks og eru ekkert annað en hræðsluáróður og tóm þvæla.

Barnaklám undir smásjá lögreglu: Sérstakt eftirlit eftir klámefnisfund háskólanema
Fullyrt að barnaklám sé á boðstólum í Reykjavík – Allir hljóta að vilja vernda börn

Að „Vernda börnin“ er aðferð sem afskaplega margir nota til þess að koma fram sínum málefnum á frekar ógeðfelldan hátt. Þessari aðferð er einstaklega oft beitt gegn klámi og annarskonar fullorðinsefni. Eins og hérna er verið að gera.

Hvað kvikmyndirnar varðar sem þarna eru taldar upp. Þá fann ég þessar upplýsingar á internetinu.

Spielzeugladen (myndin er vitlaust stafsett á spjaldinu þeirra) – Ég fann bara torrent skrána fyrir þessa klám mynd. Af þeim upplýsingum (ekki myndina sjálfa) sem þar var að finna mátti ráða að þetta var frekar gömul kvikmynd. Þar sem allir leikaranir voru eldri en 18 ára. Þetta gæti verið endurútgefin klámmynd. Það sem skiptir þó máli er að leikaranir í þessari kvikmynd eru á löglegum aldri. Þvert á það sem umræddur baráttuhópur gegn klámi heldur þarna fram á þessu auglýsingarspjaldi sínu.

Extreme Schoolgirls 9 (Adault movie database – öruggur til þess að skoða í vinnunni) – Framleidd árið 2005 í Bandaríkjunum. Þar sem ströng lög gilda um framleiðslu á fullorðinsefni eins og þessu. Þar eru allir leikaranir löglegir. Þvert á það sem baráttuhópur gegn klámi heldur fram á þessu spjaldi sínu.

Inzest geschichten – Þýsk kvikmynd (fann bara torrent og engar aðrar upplýsingar og myndin er líka vitlaust stafsett á spjaldinu). Þar sem leikaranir eru allir eldri en 18 ára. Þvert á það sem baráttuhópur gegn klámi heldur fram. Hvað efni kvikmyndarinnar varðar (ég hef ekki horft á þetta. Þessi gerð af klámmyndum er ekki það sem ég hef áhuga á) eru fantasíukvikmyndir. Eða eitthvað álíka. Það sem skiptir þó máli er að leikaranir eru löglegir og hafa alltaf verið það. Þvert á það sem þessi baráttuhópur háskólanema heldur fram.

Ég ætla að minna á þá staðreynd að svona meiðyrði eru bönnuð samkvæmt lögum og varða allt að tveggja ára fangelsi, sérstaklega þegar það er logið gegn betri vitund eins og þarna er gert. Það sem er þó merkilegast í þessu er að þessi „baráttuhópur“ gegn klámi þorir ekki að koma fram undir nafni. Heldur fremur svona meiðyrði í myrkvi og kemur með mjög alvarlegar ásakanir um mjög alvarlega glæpi undir sama nafnleysi.

Það var sagt við mig að það jafngilti pólitísku sjálfsmorði að standa gegn svona fólki. Ég er ekki sammála. Það jafngildir að láta vaða yfir sig á skítugum skónum og stappa síðan ofan á sér að leyfa svona fólki að komast upp með svona lygar og þvætting eins og þarna er verið að gera. Ég vona að kynlífsbúðir fari í mál við þetta fólk og það hart. Þar sem núna er búið að valda þessum búðum viðskiptalegum skaða og fjárhagstjóni. Ennfremur er búið að siga lögreglunni á það að óþörfu og sóa tíma lögreglunar í óþarfa.

Fréttir Pressunar af þessu.

Barnaklám undir smásjá lögreglu: Sérstakt eftirlit eftir klámefnisfund háskólanema

Fullyrt að barnaklám sé á boðstólum í Reykjavík – Allir hljóta að vilja vernda börn

Frétt af vef Stúdent.is

Benda á barnaklám í verslunum Rvk.

Hvað varðar þessa áskorun hérna.

Áskorun til karlmanna

Til að sporna við klámvæðingu segir hann nauðsynlegt að karlmenn íhugi þá þætti sem liggi að baki klámi. „Allir karlmenn ættu að velta fyrir sér hvort réttlætanlegt sé að nýta sér eymd annarrar manneskju til þess að ná kynferðislegri fullnægju.“

Hægt er að sjá veggspjald hópsins á netinu, en Student.is varar við því að efnið er ekki fyrir viðkvæma eða börn yngri en 18 ára. Hópurinn sem um ræðir, hvetur þá sem vilji verða að liði, til þess að prenta út veggspjaldið og hengja það upp sem víðast.

Þessi áskorun er bull og hefur ekkert með raunveruleikan að gera. Ég ennfremur mæli síðan með því að þetta fólk hætti að troða nefi sínu í annara manna nærbuxur án þess að hafa til þess leyfi. Þessi áskorun þeirra getur ennfremur farið til hvers þess helvítis sem viðkomandi trúir á.

(Öfga)Feministar og feðraveldið

(Öfga)Feminstar á Íslandi kenna feðraveldinu um allt það sem aflaga hefur farið í réttindabaráttu kvenna á Íslandi undanfarin 200 ár eða svo. Umræddir (öfga)feministar ákveða þó að gleyma þeirri staðreynd að feðraveldið hefur aldrei verið við lýði á Íslandi svo heitið geti. Á Íslandi hefur hinsvegar ríkt einvald kirkjunnar, sem hefur meðal annars boðað kúgun kvenna á trúarlegum forsendum. Eins og öll trúarbrögð í reynd gera og hafa alltaf gert.

Síðan má ennfremur rekja stöðu kvenna til þeirrar staðreynd að þær voru álitnir lélegri starfskraftar í upphafi iðnbyltingarinnar fyrir rúmlega 300 árum síðan (fengu lægri laun osfrv). Þetta sést mjög vel þegar söguleg gögn eru skoðuð frá þeim tíma. Þetta vilja (öfga)feministar á Íslandi ekki hlusta á, og halda því áfram að blása uppi mýtur um eitthvað sem er ekki til og hefur í reynd aldrei verið til. Í stað þess að takast á við raunveruleikann. Þá búa (öfga)femininstar til sinn eigin raunveruleika og fara að berjast á móti honum. Svona eins og vindmillubaráttu Don Quixote í Hollandi (wiki).

Það er því sorgleg staðreynd að (öfga)femininstar vinna í því gegn sem þau boða. Það er jafnrétti karla og kvenna. Þess í stað verður málstaður þeirra stöðugt öfgafyllri, með því hatri og fordómum sem fylgja alltaf slíkum öfgum. Það er ennþá sorglegra er sú staðreynd að (öfga)femininstar neita að hlusta á það þegar þeim er bent á þetta. Eins og ég reyndi að gera í dag.

Það kemur ennfremur ekki til greina að ég þegi á meðan fólk sem á að vita betur endurtekur lygar vegna þess að það hentar þeirra málstað. Ég mun alltaf verja sannleikan eins vel og ég mögulega get, í þeim málefnum sem mér þóknast og þegar mér þóknast það.

Texti uppfærður! Hluti textans hefur verið tekin út vegna þess að ég hafði rangt fyrir mér í því sem ég hélt áður fram. Vinsamlegast virðið þá staðreynd að minni hálfu. Textinn hefur eingöngu verið tekin út héðan, honum hefur ekki verið eytt varanlega.

Kvenréttindakonur á villigötum

Það segir mikið um öfgar femininsta á Íslandi að þær séu farnar að kvarta yfir götum fólks í kynfærum. Þó eingöngu kvenna. Þar sem það virðist skipta þessar konur litlu máli þó svo að karlar geri þetta einnig líka við sín kynfæri.

Það er einnig staðreynd að fullyrðingar öfga-femininsta um göt í kynfæri eru ekkert nema tóm bull og þvæla. Hérna er tilvitnun í öfgafulla femninista um kynfæragatanir.

„Ætla má að klámvæðing samfélagsins sé rót þessarar auknu eftirspurnar. Klámvæðingin hefur síast inn í vitund kvenna jafnt sem karla og kemur t.d. glögglega í ljós í poppmenningunni og í auglýsingum. Klámvæðingin stuðlar að „normaliseringu“ kláms og afleiðingum þess, s.s. kaupum á vændi, mansali, o.s.frv. Kynfæragötun getur auk þess haft alvarlegar heilsufarslegar afleiðingar fyrir konur,“ segir í ályktun sem stjórn Kvenréttindafélagsins sendir frá sér.

Tekið héðan, úr frétt Vísir.is.

Klámvæðing er ekki til. Þetta orðskrípi er fundið upp af öfga-feministum á Íslandi í þeim eina tilgangi að afsaka öfgar þeirra. Síðan er það hreinlega móðgun við heilbrigða skynsemi að tengja kynfæragötun við mansal, poppmenningu, klám, vændi og annað slíkt. Það er augljóst að öfga-feministar á Íslandi hreinlega ganga út frá því að fólk sé heimskt.

Í annari grein á öðrum vef, um svipað málefni er þessa hérna tilvitnun að finna. Þessi tilvitnun segir í raun allt sem segja þarf að mínu mati um hugsunarhátt svona fólks eins og hérna er um að ræða. Bæði á Íslandi og erlendis.

Avedon Carol, founding member of Feminists against Censorship, told us: „It [the censorship] is obscene.“

She went on: “There’s a famous quote from Marilyn Chambers who points out that in American video and TV you can show a breast being cut or shot but you can’t show it being kissed.

„Its not about protecting anyone from sex: its about making sex dirty and keeping it dirty. They may pretend that they are not being anti-sex – but they are and there is no reason that sex should be stigmatised in that way. Sex isn’t the problem.“ ®

Tekið héðan.

Ég tek undir með þessari Avedon Carol. Enda fer hún með rétt mál þarna að mínu mati.

Fréttir af þessu.

Kvenréttindafélagið varar við kynfæragötun (Vísir.is)
Varað við kynfæragötun (Rúv.is)
Kynfæragötun sífellt vinsælli. Kvenréttinda- félag Íslands varar við slíku (Eyjan.is)

Kynþáttafordómar á Íslandi eru staðreynd!

Þvert á það sem íslendingar trúa um sjálfa sig. Þá er talsvert um kynþáttafordóma á Íslandi. Þetta er auðvitað til skammar á að uppræta úr íslensku samfélagi eins og hvern annan slæman ósið íslendinga. Það hinsvegar gengur illa. Þar sem að í íslensku samfélagi er stöðugur áróður gegn „hættulegum útlendingum“ sem ætla sér að koma og stela „auðlyndum“ íslendinga og fleira í þeim dúr. Svona hræðsluáróður hefur auðvitað þær birtingamyndir að á endanum er ráðist á fólk fyrir það eitt að það velur sér ást og jafnvel maka frá öðru landi en Íslandi.

Núna hefur verið ráðist á íslenska fegða (þeir eru með íslenskan ríkisborgararétt) af kúbverskum uppruna vegna þessa að sonurinn og (íslensk) stelpa felldu saman hugi. Þetta er auðvitað til skammar og á ekki að lýðast á Íslandi eins og áður segir. Ég vona að hinir seku fá þunga dóma í fangelsi fyrir þessi afbrot sín.

Það er alveg skýrt í mínum huga að fólk hefur þann rétt að vera með þeim sem að vill. Það er ennfremur ljóst að enginn hefur rétt á því að ákveða fyrir fólk með hverjum það er. Eins og er hérna verið að gera með hótunum og ofbeldi.

Frétt Rúv.

Feðgar flýja land vegna ofsókna

Kvikmyndaframleiðsla öfgafólks

Ég sé í fréttum að íslenskir öfga-feministar fangi nýlega fengnri afstöðu Jóns Gnarr um að vera á móti klámi. Vegna þess þá ákváðu íslenskir öfgafeministar að gefa honum eintak af kvikmyndinni „The Price of Pleasure: Pornography, Sexuality & Relationships„.

Það sem kemur þó ekki fram í þessari frétt er sú staðreynd að þetta er kvikmynd sem framleidd af bandarísku öfgafólki. Þá bæði öfgakristnum og öfgafeministum þar í Bandaríkjunum. Samkvæmt því sem ég kemst næst, þá er vitnað í öfgakirstinn mann að nafni Robert Jensen í umræddri kvikmynd. Umræddur maður er öfgafeministi og öfgahægri maður, og öfgakristinn maður eins og fylgir gjarnan þessu öfgafólki.

Eins og segir í wiki grein um mannin.

In his research, Jensen draws on a variety of critical theories. As a strong pro-feminist, Jensen has focused much of his work on the radical feminist critique of pornography and of masculinity. He also has written about white privilege and institutionalized racism.

In addition to teaching and research, Jensen writes for popular media, both alternative and mainstream. His opinion and analytic pieces on such subjects as foreign policy, politics, and race have appeared in papers around the country. He also is involved in a number of activist groups working against U.S. military and economic domination.

Jensen identifies as a Radical Christian.[1] He has one child, a son.[2] Jensen is married to musician Eliza Gilkyson.[3].

Tekið héðan.

Ég fann lítið um höfunda þessar kvikmyndar, fyrir utan þeirra eigin auglýsingavefsíðu á internetinu. Þannig að framleiðendur þessar „heimildamyndar“ eru frekar óþekktir einstaklingar.

Hérna er síðan hitt sjónarhornið, sem feministar á Íslandi vilja ekki að komi fram. Þetta myndband er öruggt fyrir alla aldurshópa.

Frétt Vísir.is af þessum máli.

Feministar fagna afstöðu Jóns gegn klámi

Hatur á samkynhneigðum á Íslandi

Öfgabloggarinn Jón Valur Jensson lætur ekki sitt eftir liggja í því að boða út hatur gegn samkynhneigðu fólki á Íslandi. Svona þess á milli sem hann lýgur til um ESB og lýgur uppá stuðningsmenn ESB aðildar á Íslandi. Ég ætla þó minnst að fjalla um ESB málefni hérna. Ég ætla að fjalla um öllu alvarlegra mál.

Íslendingar hafa undanfarið verið að hneykslast á orðum færeyska þingmannsins Jens um Jóhönnu og konu hennar. Á sama tíma hinsvegar hafa íslendingar verið að hunsa skipulega það öfgafólk sem þrífst á Íslandi og er í reynd skoðanabræður Jens í Færeyjum að öllu leiti. Þetta öfgafólk á Íslandi hatar samkynhneigða og telur það fólk ekki vera mennskt í verstu öfgunum.

Núna í dag hefur Jón Valur komist að þeirri niðurstöðu að samkynhneigt fólk sé líklegra að fá HIV og AIDS vegna þess að það er samkynhneigt. Jón Valur sleppir öllum öðrum þáttum í málinu og einbeitir sér bara að þessum eina atriði. Hann hugsar ekkert út í þær staðreynd að líklega sé getnaðarvörnum ábótavant hjá samkynhneigðu fólki í Frakklandi, eða þá að þetta sé félagslegt vandamál innan samkynhneigðra þar í landi eða hugsanlega einhver önnur ástæða alls óskyld kynhegðun þessa fólks. Hvað sem því líður þá eru skoðanir Jóns Vals ógeðslegar að öllu leiti og eiga ekki að þrífast á Íslandi, í samfélagi sem telur sig vera jafnréttis-sinnað og ber virðingu fyrir ólíkum lífstíl fólks og ólíkri kynhegðun fólks.

Þeir sem vilja kynna sér hatursfulla grein Jóns Vals í garð samkyneigarð geta gert það hérna.

Hvenar munu íslendingar skilja ?

Hvenær munu íslendingar skilja það að núverandi kerfi gengur ekki og mun ekki virka í nútímasamfélagi. Sú samfélagskerð sem íslendingar eru með í dag byggir á ættarkerfi sem núna viðgengst á Íslandi virkar ekki, og hefur aldrei virkað. Enda er niðurstaðan af þessu ættarkerfi mjög einföld, þjóðfélagið er í rúst og núverandi hrun má að einhverju leiti rekja til þessa ættarkerfis sem er á Íslandi.

Efnahagshrunið á Íslandi árið 2008 var bara toppurinn á því rugli sem var komið af stað nokkrum árum áður. Þar sem nokkrar stórar ættir á Íslandi sem hafa alltaf verið við völd á Íslandi misstu sig gjörsamlega í græðginni og tóku allt þjóðfélagið með sér þegar græðgin og peningafíkin sprakk framan í þetta fólk.

Íslendingar verða að skilja sem fyrst að núverandi kerfi virkar ekki og mun aldrei virka. Eins og málin eru að þróast um þessar mundir. Þá munu þessar ættir fá sínu framgengt og íslendingar munu hafna aðild landsins að ESB ef til hennar verður kosið. Allt saman vegna þess að umræddar ættir rekna núna gífurlegan áróður gegn ESB aðild Íslands. Almenningur á Íslandi er almennt séð ekki á móti aðild. Hinsvegar er almenningur á Íslandi hræddur við ættarveldið og gerir því það sem sér er sagt. Þetta sást augljóslega strax eftir hrun þegar óreiðan var sem mest, enda rauk þá stuðningur við ESB aðild Íslands talsvert yfir 60% og hafði aldrei verið hærri síðan kannanir hófst á afstöðu íslendinga til ESB aðildar. Síðan náðu ættirnar sem stjórna og eiga Ísland aftur vopnum sínum, og þá breyttist viðhorfið hjá almenningi á Íslandi um leið

Ef íslendingar losa sig ekki við það ættarkerfi sem ríkir núna á Íslandi. Þá mun verða hérna annað hrun. Það gæti komið eftir tíu ár, eða tuttugu ár, jafnvel þrjátíu ár. Það gæti líka komið á morgun. Hinsvegar er alveg ljóst að nýtt hrun mun koma svo lengi sem að það ættarkerfi sem ég tala um hérna er við lýði á Íslandi. Vegna þess að þetta ættarkerfi veldur spillingu, vanhæfni og lélegri stjórnsýslu.

Við næsta efnahagshrun á Íslandi er ekkert víst að Ísland verði til eftir það sem ríki. Þar sem að svona efnahagshrun eins og það sem varð árið 2008 geta aðeins orðið einu sinni í sögu þjóðar. Ef slíkt gerist aftur á Íslandi. Þá eru allar líkur á því að íslendingar muni tapa sjálfstæði sínu, og að öllum líkindum gangast aftur undir dönsk yfirráð að nýju. Framtíðin mun hinsvegar skera útúr því hvað mun gerast á næstunni. Hinsvegar er ljóst að ef íslendingar breytast ekki, þá mun sagan endurtaka sig á Íslandi með hrikalegum afleiðingum fyrir alla íslensku þjóðina.

Öfgahópur andstæðinga ESB á Íslandi verður til

Öfgahópur andstæðinga ESB á Íslandi hefur orðið til á Facebook. Þetta virðist ekki vera grín, og því ber að taka hótanir sem þaðan koma mjög alvarlega. Enda koma þarna fram hlutir sem varða við almenn hegningarlög, og jafnvel hryðjuverkalöggjöf Íslands.

Skjámynd af Facebook hópnum. Smellið á myndina til þess að fá hærri upplausn.

Þennan Facebook hóp er hægt að skoða hérna. Fyrir þá sem vilja skoða ófögnuðinn.