Jarðskjálfti uppá Mw7.2 í Chile

Í dag klukkan 14:39 UTC varð jarðskjálfti uppá Mw7.2 í Chile, á því svæði þar sem Mw8.8 jarðskjálftinn varð fyrir nokkru síðan. Jarðskjálftinn varð fyrir sunnan Santiago. Dýpi jarðskjálftans var 2km samkvæmt EMSC.

Sem stendur hafa ekki borist neinar fréttir af tjóni, en reikna má með að það sé talsvert vegna stærðar jarðskjálftans og staðsetningar.